Í valáfanganum Teiknimyndasögugerð sömdu nemendur og teiknuðu eigin sögur frá grunni. Nemendur hönnuðu sögusvið og frumsamdar persónur og unnu góðan grunn að söguþræði áður en þeir hófust handa við að teikna sögurnar sínar. Afraksturinn er glæsilegar og fjölbreyttar myndasögubækur sem fjölluðu m.a. um einmana geimverur, ástríðufulla íþróttamenn, atvinnumissi, kexfíkn, hjartnæma vináttu, ævintýraleg ferðalög og hrekkjótta ketti. Eins og sjá má réðu hugmyndaflug og sköpunarkraftur ríkjum í þessum valáfanga í vor!