Ferð í Húsdýragarðinn
Nemendur í 1. bekk gengu alla leið frá Hvassaleitisskóla í Húsdýragarðinn til að læra um dýrin. Við vorum svo einstaklega heppin að fá að hitta nýfæddu lömbin og kiðlingana og vakti það mikla lukku. Krakkarnir borðuðu síðan nestið sitt í grasagarðinum og nutu veðurblíðunnar.
Heimsókn í Perluna
1. bekkur fór líka í heimsókn á sýninguna "Vatn í íslenskri náttúru" þar sem við lærðum ýmislegt um lífverur í íslensku vatni og fengum að leika okkur í Öskjuhlíðinni. Sýningin var mjög skemmtileg og vakti mikinn áhuga hjá nemendum!
Hjólafjör
Nemendur í 1.bekk mættu með hjólin/hlaupahjólin sín í skólann í tveimur íþróttatímum. Markmiðið var að æfa öruggar hjólreiðar og efla færni nemenda á hjólum. Þrautabraut var sett upp á skólalóðinni sem nemendur hjóluðu í gegnum en einnig hjóluðu þeir í kringum skólann. Nemendur stóðu sig mjög vel.