Leirofninn vaknaði úr dvala þetta skólaárið og það við mikinn fögnuð. Nemendur á miðstigi gátu kynnt sér mismunandi tegundir af leir í valinu hjá Rannveigu og Selmu og prófuðu sig áfram með mismunandi aðferðir í leirmótun. Einnig náðu allmargir nemendur að gera leirverk hjá Selmu í List- og verkgreininni sem kom í stað heimilisfræði þetta árið. Það var virkilega gaman að sjá krakkana koma hugmyndum sínum í verk