Dagana 27. apríl – 8. maí var lestrarátak í Hvassó sem kallaðist Íslestur. Markmið átaksins var að hvetja nemendur til aukins lesturs á skemmtilegan og hvetjandi hátt. Fyrir hverjar 100 mínútur sem nemandi las fékk hann „strá“ (sprinkles) til að setja á ís skólans sem var staðsettur í matsalnum. Þegar átakinu lauk, föstudaginn 8. maí, fóru stjórnendur um skólann með ís fyrir alla nemendur í verðlaun fyrir góðan árangur og dugnað.
Mánudaginn 11. maí var síðan uppskeruhátíð á sal skólans en 2. bekkur bar sigur úr býtum á yngra stigi og 5. bekkur á miðstigi. Einnig fékk Sara Björk Ingvarsdóttir í 6. bekk verðlaun fyrir að lesa mest allra í skólanum en hún las í 3.100 mínútur samtals, frábært hjá henni.
Oggi stuðningsfulltrúi varð Íslandsmeistari í handbolta fimmtudaginn 7. maí en hann spilar alltaf með hvítt svitaband. Starfsfólk skólans setti upp hvítt band honum til heiðurs og nemendur sungu „Íslandsmeistari, já Íslandsmeistari“ þegar hann gekk inn í salinn.