2.bekkur gerði sér glaðan dag og fór í óvissuferð í Grafarvog þar sem nemendur léku sér, grilluðu pulsur og nutu sín saman. Samfélagslöggan kom í heimsókn og ræddi við nemendur um mikilvægi þess að virða umferðarreglur, nota hjálma og fleira. Nemendur voru mjög áhugasamir um fræðsluna og sögðu lögreglunni allskonar sögur.