Fimmti bekkur var á faraldsfæti síðustu vikur skólaársins. Það er bara svo gaman að flækjast um í strætó, sjá sýningar og borða nestið sitt úti.
Sumum finnst kannski skrýtið að bekkurinn hafi farið tvisvar sinnum með einungis tveggja vikna millibili á Landnámssýninguna í Aðalstræti, en þar eru nokkrar sýningar í gangi undir merkjum Borgarsögusafns Reykjavíkur. Bekkurinn sá annars vegar sýninguna Heima í stofu með víkingum og hins vegar sýninguna Gamla Reykjavík. Krökkunum er farið að þykja vænt um safnakennarann sem tekur alltaf svo vel á móti okkur, bæði þarna og í Árbæjarsafni. Allir borðuðu svo nestið sitt úti á litlum leikvelli í Grjótaþorpinu og má segja að það hafi bara verið eins konar vorboði.
Hópurinn fór líka í Hörpu í byrjun maí og sá tónleika/sýningu með hlaðvarpsdrengjunum úr Fílalagi þar sem Sinfoníuhljómsveitin spilaði brot úr frægum tónverkum sem þeir Bergur Ebbi og Snorri „fíla“. Virkilega skemmtileg sýning þar sem fjöldi annarra grunnskóla var líka að njóta með okkur. Fimmti bekkur hlakkar til að ljúka skólaárinu og fara út í sumarið, takk fyrir veturinn!