Á dögunum lauk einstaklega skemmtilegu og lærdómsríku þemaverkefni hjá nemendum í 6. bekk. Þar var unnið með Snorra sögu en nemendur sökktu sér ofan í söguna, kynntust helstu persónum og rýndu í atburði hennar. Verkefnið spannaði nokkrar vikur og á þeim tíma dýpkuðu nemendur skilning sinn á íslenskum menningararfi, sögu og bókmenntum á afar skapandi hátt.
Miðpunktur verkefnisins var Íslandskort sem nemendur unnu saman í hópum og með því að nota Touch Board og koparlímband kom allt saman í gagnvirkum söguvegg. Gestir og gangandi gátu hlustað á samantekt á köflum sögunnar sem nemendur lásu sjálf og hljóðrituðu. Verkefnið vakti mikla lukku og nemendur sýndu ótrúlega sköpunargleði sem smitaði út frá sér um allan skólann. Það var dásamlegt að sjá hve fljótt nemendur tileinkuðu sér efnið og hversu mikla vinnu þau lögðu í alla hluta verkefnisins. Við erum afar stolt af vinnunni þeirra og hlökkum til næstu ævintýra í skólastarfinu.