Í haust tók Hvassaleitisskóli þátt í Svakalegu lestrarkeppninni 2025. Það er gaman að segja frá því að skólinn hafnaði í 5. sæti 👏 en alls tóku 90 skólar þátt. Nemendur lásu að meðaltali 1293 mínútur á nemanda á einum mánuði. Þetta er frábær árangur sem við getum öll verið stolt af.
Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir afhentu skólanum sérstaka viðurkenning fyrir þennan glæsilega árangur í byrjun nóvember. Nemendur okkar lögðu sig fram af miklum dugnaði og það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi kviknaði á lestri í tengslum við keppnina.
Við viljum þakka öllum nemendum sem tóku þátt fyrir frábæra vinnu og foreldrum og forráðamönnum fyrir stuðninginn heima fyrir. Lestur er undirstaða alls náms og þessi árangur sýnir hversu vel okkur gengur að efla lestrarmenningu innan skólans.
Tæplega 17 þúsund börn í 1.-7. bekk í 90 skólum um land allt tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni 2025. Lestrartölurnar eru vægast sagt svakalegar en samtals hafa öll börnin lesið í um 9,7 milljón mínútur á einum mánuði, eða í 161.539 klukkustundir. Skólar um allt land og af öllum stærðum tóku þátt í keppninni. Fámennasti skólinn með 6 nemendur og sá fjölmennasti með rúmlega 500 nemendur.
Melaskóli stendur uppi sem sigurvegari en þar lásu börnin í heilar 929.962 mínútur á tímabilinu 15. september til 15. október 2025. Það eru 15.500 klukkustunda lestur. Hver nemandi í Melaskóla las að meðaltali í 1813 mínútur yfir einn mánuð, eða í um 30 klukkustundir.