Það er orðið ansi jólalegt um að litast í Hvassó og jólahurðaskreytingarnar hafa að vanda vakið mikla lukku.
Nemendur og starfsfólk hafa hjálpast að við að skreyta og mörg glæsileg listaverk er nú að finna á hurðum skólans eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.