Aðventuhátíð Hvassaleitisskóla var haldin fimmtudaginn 27. nóvember. Eins og undanfarin ár fór hún fram utan dyra eftir skóla svo fjölskyldur og vinir gætu notið með okkur og í framhaldinu tók svo við jólaföndur foreldrafélagsins á sal skólans.
Starfsfólk Hvassaleitisskóla var með stöðvar og bása á skólalóðinni og þar var boðið upp á skemmtilega jólaleiki, margvíslegt góðgæti o.fl. Hér eru nokkrar myndir frá hátíðinni í ár.