Velkomin(n) á Arduino kennslusíðuna. Á þessari síðu verður farið yfir ýmislegt sem tengist Arduino. Undir þessari síðu eru margar undirsíður.
Á hvaða hátt ert þú skapandi? Spilar þú á hljóðfæri eða málar þú? Stundar þú skapandi skrif? Googlaðu "Arduino projects". Hugleiddu svo hvort að þú getir teng þína skapandi hugsun við Arduino.
Stundum fær maður góða hugmynd þegar maður er úti að labba eða í sturtu. En ef maður þarf að fá góða hugmynd getur það verið svolítil vinna. Skifaðu niður 10 hugmyndir að Arduino verkefnum eða allar þær hugmydir sem þú færð á 60 sekúndum. Ef þú ert staðnemi gerðu þetta í hóp eða með félaga. Veldu svo bestu hugmundina til að þróa áfram. Hugsanlega þarftu að horfa til baka þegar þú ert kominn aðeins lengra í náminu og endurskoða væntingar þínar. Stendu að því að vinna úr átlitlegustu hugmyndinni á önninni. Kannski er hún framkvæmanleg - kannski ekki.
Ef það gengur illa að fá hugmynd getur verið gott að brjóta ísinn með því að koma með lélegar hugmyndir - hugmyndir sem eru illframkvæmanlegar eða beinlínis tilgangslausar. Raðaðu hugmyndum þínum eða hópsins í röð eftir því hvað þær eru slæmar og gefðu verstu hugmyndinni gott klapp.