Arduino er örtölva sem á uppruna á Ítalíu. Hún var fyrst þróuð af Massimo Banzi, David Cuartielles, Tom Ingoe, Gianluca Martino og David Mellis við Gazi háskólann árið 2005. Arduino er lítið borð með rafrásum og rafmagnsíhlutum, þar á meðal AT-mega örtölvu. Arduino var í upphafi ekki ætlað að verða kennslugagn sem slíkt. Áhugasvið hönnuðanna var að vinna með höndunum og skapa nýjar hugmyndir. Arduino var í kjölfarið sett á markað fyrir almenning og varð mikil lyftistöng fyrir þá hugmyndafræði að gera hlutina sjálfur (e. D.I.Y.). Notendur tóku fljótt ástfóstri við það frelsi og möguleika sem Arduino umhverfið veitir. Það eru nokkrar ólíkar gerðir af Arduino borðum hvað varðar stærð, fjölda inn og útganga og afl örgjörva, en í grundvallaratriðum virka borðin eins. Hugmyndafræðin bak við Arduino byggir á því að hug- og vélbúnaðurinn er „opinn“ (e. open-source) og er því öllum frjálst að hanna sín eigin Arduino verkefni. Forritunarumhverfið fyrir Arduino (e. integrated developmental enviroment) er einnig aðgengilegt og auðvelt að setja það upp og vinna í því , auk þess sem nú er komið viðmót til að vinna Arduino verkefni á netinu. Við Arduino borð er hægt að tengja fjölda íhluta og það styður einnig fjölda samsettra íhluta (e. shields), sem gerir notendum kleift að þróa ýmis verkefni (e. projects) stór og smá.