Til að byrja að nota Arduino örtölvu þarf fyrst að tengjast Arduino viðmóti eða hlaða niður Arduino hugbúnaði sem er tengiliður tölvunnar þinnar við Arduino örtölvuna. Allar upplýsingar er að finna á síðunni Arduino.cc. Hægt er að vinna í Arduino beint á netinu, í appi eða hlaða niður viðmótinu í windows, Mac og Linux tölvur.
Unnið beint á netinu.
Til að vinna í Arduino á netinu þarf að búa sér til nýjan aðgang eða tengjast í gegnum google aðgang.
Svona lítur Arduino viðmótið út þegar unnið er á netinu.
Hér er stutt myndband sem sýnir hvernig farið er inn í Arduino viðmótið á netinu og Arduino tölvan tengd.
Hér til hliðar er myndband með gagnlegu verkefni. Forritunarkóðinn sem notaður er í verkefninu er hér fyrir neðan. Þú einfaldlega afritar kóðann og límir inn í Arduino ritilinn þinn.
C forritunarmálið er ekki merkilegasta forritunarmál í heimi. Það er hvorki eins vinsælt og Java né eins háþróað og Python. ATmega328p er heldur ekki nýjasta eða öflugasta örtölva í heimi. C og ATmega328p eru hinsvegar mjög gott par fyrir þau verkefni sem Arduino er ætlað til. Skipanir í C keyrast mjög hratt og örtölvan getur framkvæmt gríðarlegan fjölda skipana á hverri sekúndu. Þegar notandi hefur náð tökum á einu forritunarmáli er mun auðveldara að ná tökum á því næsta. Viðfangsefni tengd Arduino felast í því að öðlast skilning á þeim röksemdafærslum sem forritun byggir á og temja sér. Leita lausna við vandamálum og tileinka sér öguð og nákvæm vinnubröð við lausn skemmtilegra verkefna. Notandi kynnist virkni rafmagns, sem straums og stafrænna merkja og notkun ýmissa íhluta í öruggu umhverfi. Lítil sem engin hætta er á meiðslum eða að dýrir hlutir skemmist.