Það væri erfitt að hugsa sér líf okkar án rafmagns. Það rafmagn sem við nýtum á heimilum þegar við tengjum tæki við innstungur er 220 volt. Hér erum við ekki að vinna með þesskonar spennu.
Sjá nánar hér: Almennt um rafmagn
Í Arduino fræðum eru rafmagnshringrásir mikilvægar. Ólíkt venjulegu húsrafmagni sem er riðstraumur (AC) er Arduino borðið og íhlutir þess tengd jafnstraumi. Það þýðir að rafstraumurinn fer aðeins í eina átt, frá pól merktum + í pól merkan - þ.e. jörð.