Sigurður Narfi Rúnarsson, M.Ed.- nemi og leiðbeinandi á starfsbraut Framhaldsskólans á Húsavík. Séu einhverjar fyrirspurnir eða athugasemdir við þessa síðu, þá sendu mér endilega línu á sigurdur@fsh.is Eltu mig á samfélagsmiðlum:
Hér til hliðar er myndband til að kynnast höfundi síðunnar, hugleiðingar um mikilvægi tæknimenntar og mismunandi aðkomu að tækninni.
Til áréttingar: Í myndbandinu koma fyrir ensku skammstafanirnar S.T.E.M. og S.T.E.A.M. S stendur fyrir schience-vísindi, T fyrir technology-tækni, E fyrir enginering-verkfræði og M mathematics-stærðfræði. Þeir sem tala fyrir STEM greinum vilja aukna áherslu á þessar greinar í skólakerfinu. Í seinni skammstöfuninni hefur verið bætt við A fyrir art-listir/skapandi greinar því þær eru ekki síður mikilvægar. Þú þarft ekki nemandi góður að læra þessi hugtök. Einnig vil ég taka fram að þótt ég leggi áherslu á að nemendur tileinki sér tæknimennt geri ég ekki lítið úr félags- og hugvísindum enda er ég sjálfur sagnfræðingur.
Höfundur þessarar síðu firrar sig allri ábyrgð á hugmyndum að Arduino verkefnum sem varða þjóðaröryggi, svo sem sprengjum eða gereyðingarvopnum eða tækni sem brýtur gegn friðhelgi einkalífs, aljóðlegum samningum eða viðteknum skoðunum um smekkvísi og kurteisi!
Um höfundarrétt: Síða þessi er öllum til afnota. Ljósmyndir á síðunni er af vefsíðunni https://unsplash.com/ og úr safni höfundar.