Brauðbretti (e. breadboard) er mikilvægt hjálpartæki þegar unnið er með Arduino. Brauðbrettið gerir þó ekkert annað en að leiða straum áfram frá vír sem tengdur er inn á brettið, í næsta íhlut og þaðan aftur inn á aðra rás á brettinu, eða frá brettinu aftur til baka í Arduino tölvuna. Brauðbrettið er sem sagt rásir sem leiða straum. Við þurfum ekki að nota brauðbretti, en þá þurfum við í staðinn að lóða alla víra saman. Við getum hugsað okkur brauðbretti sem fjöltengi. Rásirnar sem eru lóðréttar á myndinni, merktar + og - eru yfirleitt notaðar til að tengja frá 5V og 3,3V og aftur til baka í jörð (ground). Rásirnar sem eru merktar með tölum eru til að tengja íhluti við Arduino tölvuna. Bilið milli bókstafanna e og f er kallað brú. Þetta er úskýrt betur á næstu mynd.
Appelsínugulu línurnar sýna leiðni í rásum brauðbrettisins. Það þýðir að sé straumur tengdur inn á eitthvað gat á línu með appelsínugulum lit er hægt að taka straum út allastaðar á þeirri línu. Hinsvegar er ekki tenging milli gatanna á svörtu línunum.
Prófaðu skilning þinn hér.