Hér eru nokkur grundvallar atriði í Arduino fræðum. Neðar á síðunni getur þú kannað skilning þinn á breauðbrettum.
Hér eru nokkrir vírar til að tengja Arduino við íhluti. Mikilvægt er að átta sig á því að allir vírarnir eru í eðli sínu eins. Það skiptir í raun ekki máli hvort við notum svartan, gulan eða rauðan. Hinsvegar er venja að nota rauðan vír til að tengja staum inn á + á brauðbrettinu (sjá hér að neðan) og svartan vír til að tengja frá - mínus á brauðbrettinu inn á jörð (ground) á Arduino tölvunni. Svo er gott að nota mislita víra til að tengja íhluti svo auðveldara sé að gera villuleit.
ATHUGIÐ Rafvirkjar hafa skýrar reglur um liti á vírum. Aldrei fikta við húsrafmagn eða rafmagnsvíra í húsum nema vita nákvæmlega hvað þú ert að gera.