Seztu hérna hjá mér,
systir mín góð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát af því,
að mamma ætlar að reyna sofna
rökkrinu í.
Mamma ætlar að sofna.
Mamma er svo þreytt.
- Og sumir eiga sorgir,
sem svefninn getur eytt.
Sumir eiga sorgir,
Og sumir eiga þrá,
sem aðeins í draumheimum
uppfylla má.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Mamma ætlar að sofna,
systir mín góð.
Ljóð eftir Davíð Stefánsson
Davíð Stefánsson
Heimildir
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Að norðan, Ljóðasafn 1. bindi. (1952) Reykjavík, Helgafell.
Ljómynd tekin úr:Að norðan, Ljóðasafn 1. bindi. (1952) Reykjavík, Helgafell.