Heitrofi, heitrofi,
hrópa ég á þig;
það eru álög,
sem ástin lagði á mig.
--
Komdu, ég skal brosa
í bláu augun þín
gleði, sem aldrei
að eilífu dvín
Komdu, ég skal kyssa í þig
karmennsku og þor,
hreystina og fegurðina
og frelsisins vor.
Komdu, ég skal gráta í þig
göfgi og trú
og hugsun þinni byggja
upp í himininn brú.
Komdu, ég skal glaðvekja
guðseðlið þitt
og fá þér að leikfangi
fjöreggið mitt
--
Ég skal lifa á beinum
af borðinu hjá þér
og húsið þitt sópa
með hárvendi af mér
Ekki skal það kvelja þig
skóhljóðið mitt;
ég skal ganga berfætt
um blessað húsið þitt.
Ég skal þerra líkama þinn
með líninu því,
er ég dansaði saklaust
og sælust í.
Ég skal hlusta og vaka
við höfðalagið þitt
og vekja þig, ef þig dreymir illa,-
veslings dýrið mitt.
--
Rándýr, forna rándýr, -
fyrirgefðu mér.....
Viltu að ég sofi
í sænginni hjá þér?
Komdu, ég skal orna þér
við eldinn minn.
Leggðu ennið að hjarta mér
og horfðu inn -
Svona vertu nú rólegur,
vinurinn minn.
Er hann ekki notarlegur
ylurinn?
Þíðir hann ekki
ísgerfið þitt?
--Logaðu,logaðu,
litla hjartað mitt!
Ljóð eftir Davíð Stefánsson
Heimildir
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Að norðan, Ljóðasafn 1. bindi. (1952) Reykjavík, Helgafell.