Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Aðferðir og efni :
skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum og tækni,
Unnið sérstaklega í 1. bekk
Útfærsla og tækni:
nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar,
Unnið sérstaklega í 2. bekk
Vinnuferli:
útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki
Unnið sérstaklega í 3. bekk
Hugmyndavinna:
unnið út frá kveikju við eigin listsköpun, bæði í tví- og þrívíðu formi.
Skemmtilegir og skrítnir röndóttir vasar: Þrívíð form, speglun og mótun. Nemendur vinna með vasa, teikna þá í þrívídd og vinna með rými, þrívídd, speglun og skugga. Nemendur útbúa að því loknu sína eigin vasa í keramik.
Tjáning:
tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
Unnið sérstaklega í 1. bekk
Umfjöllun og endurgjöf:
fjallað um eigin verk og annarra
Unnið sérstaklega í 3. bekk
Greining og samhengi :
greint á einfaldan hátt listaverk og myndmál í því
Nemendur vinna með egypskt myndletur. Þeir útbúa tvívítt nafnpjald og þrívítt í formi keramiks. Nemendur fá innsýn inn í list forn-Egypta
Hugtök :
þekkt hugtök og heiti sem tengjast frumþáttum og lögmálum myndlistar við vinnu verkefna hverju sinni
Unnið sérstaklega í 2. bekk
Aðferðir og nálgun:
greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka
Unnið sérstaklega í 3. bekk
Tilgangur og samhengi:
skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar
Nemendur vinna með jákvæð og neikvæð form með sjónrænum blekkingun, vasi eða andlit. Nemendur vinna með heita og kalda liti og útlínur borgar með verkerfninu borg í ljósaskiptunum. Nemendur vinna þannig með mismunandi áhrif heitra og kaldra lita, ljóss og skugga. Nemendur vinna með ýmsa möguleika línunnar í verkefninu brjálaður hárdagur.
Stefnur og straumar:
þekkt og gert grein fyrir völdum verkum íslenskra listamanna, lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og þær aðferðir sem beitt var við sköpun verksins
Unnið sérstaklega í 1. bekk