Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Aðferðir og efni :
skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum og tækni,
Nemendur vinna með grunnformin ferning, þríhyrning og hring. Þeir útbúa grís, vélmenni og tígrisdýr.
Útfærsla og tækni:
nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar,
Unnið sérstaklega í 2. bekk
Vinnuferli:
útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki
Unnið sérstaklega í 3. bekk
Hugmyndavinna:
unnið út frá kveikju við eigin listsköpun, bæði í tví- og þrívíðu formi.
Unnið sérstaklega í 4. bekk
Tjáning:
tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
Nemendur vinna með lífræn form, línur og speglun. Þeir útbúa fiðrildi og kynnast muninum á náttúrulegum formum/lífrænum formum og grunn formunum. Nemendur segja frá sínu fiðrildi og lýsa jafnvel ferðalagi/hringrás fiðrildisins frá því að vera egg, lirfa, púpa og fiðrildi
Umfjöllun og endurgjöf:
fjallað um eigin verk og annarra
Greining og samhengi :
greint á einfaldan hátt listaverk og myndmál í því
Unnið sérstaklega í 4. bekk
Hugtök :
þekkt hugtök og heiti sem tengjast frumþáttum og lögmálum myndlistar við vinnu verkefna hverju sinni
Unnið sérstaklega í 2. bekk
Aðferðir og nálgun:
greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka
Unnið sérstaklega í 3. bekk
Tilgangur og samhengi:
skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar
Unnið sérstaklega í 4. bekk
Stefnur og straumar:
þekkt og gert grein fyrir völdum verkum íslenskra listamanna, lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og þær aðferðir sem beitt var við sköpun verksins
Unnið sérstaklega í 2. bekk