Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Aðferðir og efni :
skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum og tækni,
Unnið sérstaklega í 1. bekk
Útfærsla og tækni:
nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar,
Unnið sérstaklega í 2. bekk
Vinnuferli:
útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki
Nemendur vinna sjálfsmynd, þar sem unnið er með forgrunn og bakgrunn. Þeir útskýra vinnuferlið og sýna og segja frá afrakstrinum (hugmynd, fiskabúr).
Hugmyndavinna:
unnið út frá kveikju við eigin listsköpun, bæði í tví- og þrívíðu formi.
Unnið sérstaklega í 4. bekk
Tjáning:
tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
Unnið sérstaklega í 1. bekk
Umfjöllun og endurgjöf:
fjallað um eigin verk og annarra
Grænmetisgarðurinn: Nemendur ræða sérstaklega um fjarvídd, fjarvíddarpunkt, forgrunn og bakgrunn í verkefninun um grænmetisgarðinn. Þekki þannig einfalda myndbyggingu og hvernig hægt er að skapa rýmistilfinningu
Greining og samhengi :
greint á einfaldan hátt listaverk og myndmál í því
Unnið sérstaklega í 4. bekk
Hugtök :
þekkt hugtök og heiti sem tengjast frumþáttum og lögmálum myndlistar við vinnu verkefna hverju sinni
Unnið sérstaklega í 2. bekk
Aðferðir og nálgun:
greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka
Nemendur útbúa teikningu af vettlingum og vinna með heita og kalda liti,mynstur og speglun. Ævintýraskógur blanda 1. stigs litum saman útbúa 2. stigs liti og vinna með andstæða liti, útbúa ævintýraskóg. Teboð í Undralandi, nemendur vinna með línur og mynstur útbúa bolla í þrívíddarteikningu. Nemendur vinna með árstíðirnar í keramik, þeir útbúa bolla/skál með haustlaufi á, jóladisk (vetur), vorskál og sumarskál. Grænmetisgarður, nemendur vinna með einn fjarvíddarpunkt og teikna grænmetisgarð, vinna með rými og sýna mun á forgrunni og bakgrunni.
Tilgangur og samhengi:
skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar
Unnið sérstaklega í 4. bekk
Stefnur og straumar:
þekkt og gert grein fyrir völdum verkum íslenskra listamanna, lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og þær aðferðir sem beitt var við sköpun verksins
Unnið sérstaklega í 2. bekk