Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Aðferðir og efni:
notað mismunandi efni, verkfæri, miðla og tækni, á skipulagðan hátt í eigin sköpun,
Útfærsla og tækni:
nýtt sér grunnþætti myndlistar í eigin sköpun
Vinnuferli:
byggt eigin listsköpun á hugmyndavinnu tengdri ímyndun, rannsóknum og reynslu
Hugmyndavinna:
unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk
Nemendur fá fræðslu um leirmótun og skraffito, aðferð sem nýtt er til skreytingar á leir. Þeir vinna með tvær gerðir af glerungum, s.k. undirglerung og glerung. Þeir teikna hugmynd að skreytinug fyrir leirskál sem þeir síðan skera út í leirskálina
Tjáning:
tjáð skoðanir eða tilfinningar í eigin sköpun með tengingu við eigin reynslu
Nemendur vinna a.m.k. tvö glæruverkefni (Google slides) á vetri, annað er haustverkefni og nefnist Um mig, 5-7 glærur um fjölskyldu, áhugamál og fleira sem nemandi vill sýna.
Hitt er bókakynning þar sem nemandi velur bók sem nýbúið er að lesa í heimalestri eða yndislestri, segir frá söguþræði bókarinnar, aðal- og aukapersónum, höfundi bókarinnar og hvaða aðrar bækur höfundur hefur skrifað. Nemandi þarf að skrá bókina sem heimild aftast í glærusýningunni. Nemendi þarf svo að kynna bókina sína fyrir samnemendum.
Umfjöllun og endurgjöf:
fjallað um eigin verk og annarra
Greining og samhengi:
greint á einfaldan hátt listaverk og myndmál í því
Hugtök:
beitt hugtökum og heitum frumþátta og lögmála myndlistar sem tengjast aðferðum verkefna hverju sinni
Aðferðir og nálgun:
greint, borið saman og metið aðferðir við gerð margs konar listaverka
Tilgangur og samhengi:
gert grein fyrir margvíslegum tilgangi myndlistar og hönnunar
Stefnur og straumar:
þekkt og gert grein fyrir völdum verkum íslenskra og erlendra listamanna, lýst þeim og greint og fjallað um ýmsar stefnur myndlistar með því að bera saman stíla og tímabil tiltekinna verka.
Listasaga. Nemendur kynnast sögu popplistar. Þeir skoða bæði verk eftir ERRÓ og Andy Warhol og vinna síðan verk í anda Andy Warhol.