Yngri nemendur í Meistaradeild fóru í tvær skemmtilegar vettvangsferðir, annars vegar á bókasafn og hins vegar í hesthús. Strætóferðir klikka aldrei og það er alltaf eitthvað nýtt að uppgötva.
Í heimsókninni á bókasafnið fóru börnin beina leið í barnadeildina þar sem þau léku sér, skoðuðu bækur, lásu og nutu þess að eiga rólega stund. Á leiðinni heim nýtti hópurinn tækifærið til að fara í stuttan göngutúr um miðbæinn og skoðaði meðal annars Ingólfstorg, Austurvöll og Alþingishúsið.
Nokkrum dögum síðar fór sami hópur í heimsókn í hesthús til Ulrike, eins af kennurum deildarinnar. Strætóferðin reyndist ævintýraleg og innihélt stutt en skemmtilegt labb frá Reykjavík yfir í Kópavog ásamt örlítið lengri bið eftir næsta vagni en gert hafði verið ráð fyrir.
Í hesthúsinu fengu krakkarnir að kynnast hestunum, gefa þeim hey og epli og leika sér í heyinu. Heimsóknin vakti mikla lukku og börnin sýndu dýrunum mikinn áhuga. Að lokum heimsótti hópurinn nágrannahesthús þar sem einnig voru kanínur, naggrísir og litlir kettlingar sem börnin fengu að klappa. Þetta voru tvær vel heppnaðar ferðir sem gáfu nemendum tækifæri til að upplifa nýtt umhverfi, kynnast dýrum og njóta samveru utan skólastofunnar.
Eldri meistarar hafa verið að vinna í fuglaverkefni. Þeir völdu sér einn fugl og áttu að búa til egg þess fugls sem þeir völdu og eggin þurftu að vera í réttri stærð. Eggin voru búin til úr leir og voru síðan máluð þegar leirinn var orðinn harður.