Væntanlegt í ágúst 2026
Í leiðsagnarhefti sérðu hvað þú ert að þjálfa í málebru verkefnaheftunum. Merktu við það sem þú skilur og ert búið að vinna. Sýndu kennaranum þínum af og til hvernig þér gengur og fáðu endurgjöf svo þú sjáir hvort þú sért á réttri leið eða þurfir að þjálfa eitthvað betur.
Lestu vel um efnið í glósum og námsbókum áður en þú byrjar að vinna verkefnaheftin.
Talaðu við vini um efnið á meðan þú vinnur og hjálpist að við að finna lausnir – þannig læra allir meira.
Skrifaðu þín eigin svör – þannig festist námið betur í þinn eigin skilning.
Þú opnar hvern flokk hér neðar til að sækja verkefnin og leiðbeiningar um hvernig þú vinnur þau.
Verkefni með nokkrum algengum orðum sem skipta miklu máli að skilja í öllu námi. Æfingar til að efla orðaforða og fjölbreytta málnotkun. Æfingar um samtengingar.
Verkefni sem fjalla um eintöluorð og fleirtöluorð. Æfingar um hvernig fornöfn eru notuð í málinu og í að þekkja algengustu fornöfnin.
Verkefni sem fjalla um sagnorð, veika og sterka beygingu þeirra, kennimyndir og hætti. Æfingar í að þekkja og greina nafnhátt, framsöguhátt, viðtengingarhátt og boðhátt.
Verkefni sem fjalla um orðmyndun og orðhluta. Æfingar til að skoða skyldleika orða í íslensku og öðrum tungumálum. Verkefni um nýyrði, tökuorð, slangur og fleira.
Verkefni sem fjalla um sannfærandi texta og málnotkun sem er viðeigandi í slíkum textum. Æfingar um gildishlaðin lýsingarorð.
Í heftinu eru æfingar þar sem nemendur lesa um ólíkar skoðanir á máli og málnotkun og greina þær.
Kennari lætur þig vita hvort þú eigir að vinna þetta hefti.
Athugið að námsmarkmið sem sett eru við þessi hæfniviðmið eru birt í leiðsagnarheftinu.
Nemandi getur...
tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim.
...notað fjölbreyttar aðferðir til að efla orðaforða sinn.
beitt ríkulegu tungutaki, fjölbreyttum orðaforða og málsniði í texta eftir því hver tilgangur skrifanna er, fyrir hvaða viðtakendur er skrifað og hvaða birtingarform er valið.
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um tungumálið, þróun og einkenni þess og nýtt hana í eigin málnotkun.
áttað sig á fjölbreyttum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og beitt mismunandi málsniði eftir tilefni í ræðu og riti.
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra.
nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess. nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess.
Lykilhæfni: Getur hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða.
Lykilhæfni: Getur skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi.
Nemandi getur beitt þekkingu sinni á málfræði í umræðu um tungumálið, einkenni þess og margbreytileika og beitt því á fjölbreyttan hátt í ræðu og riti.
Áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra.
*Hæfniviðmið og matsviðmið sem unnið er með í málebru eru úr Aðalnámskrá grunnskóla 2024, kafla 19. íslenska og kafla 18. lykilhæfni.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði