Velkomin í málebru!
Á þessum vef finnur þú námsefni í algebru og málfræði sem hjálpar þér að ná hæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.
Í hvoru fagi (málfræði og algebru) eru fimm þrep sem smám saman þjálfa flóknari hæfni. Það er því mikilvægt að þú byrjir vinnuna á því þrepi sem þú ræður vel við og haldir svo áfram að efla hæfnina þína í málfræði og algebru með vinnu á seinni þrepum.
Námsefnið felst í kennslumyndböndum, verkefnaheftum og leiðsagnarheftum. Mikilvægt er að þú glósir vel þau hugtök sem kynn eru á hverju þrepi áður en þú byrjar að vinna verkefnaheftin. Ef þig vantar meiri hjálp talar þú við kennara. Kennararnir þínir kalla líka hópa saman í samræður, æfingar og leiki til viðbótar við verkefnin sem þú vinnur í heftunum.
Í lok hvers þreps tekur þú svo könnunarpróf. Niðurstaðan úr því prófi segir til um hvort þú sért tilbúið að halda áfram á næsta þrep eða þarft að æfa þig betur.
Á öllum þrepum notar þú leiðsagnarhefti samhliða verkefnunum sem þú vinnur. Í leiðsagnarheftinu sérðu hvaða hæfniviðmið eru þjálfuð í hverju verkefni og árangursviðmið sem útskýra betur hvað það er sem þú þarft að gera eða sýna kennara að þú skiljir.
Hafðu leiðsagnarheftið hjá þér á meðan þú ert að vinna verkefnin á þrepinu. Merktu jafnóðum við þau atriði sem þú hefur náð tökum á. Gott er að fara með heftið til kennara af og til og fá endurgjöf á það sem þú ert búið að gera og leiðbeiningar um hvernig best sé að halda áfram. Kennarar skrá allt námsmat í heftin svo þú sérð hvort þú sért á réttri leið.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði