Í leiðsagnarhefti sérðu hvað þú ert að þjálfa í málebru verkefnaheftunum. Merktu við það sem þú skilur og ert búið að vinna. Sýndu kennaranum þínum af og til hvernig þér gengur og fáðu endurgjöf svo þú sjáir hvort þú sért á réttri leið eða þurfir að þjálfa eitthvað betur.
Lestu vel um efnið í glósum og námsbókum áður en þú byrjar að vinna verkefnaheftin.
Talaðu við vini um efnið á meðan þú vinnur og hjálpist að við að finna lausnir – þannig læra allir meira.
Skrifaðu þín eigin svör – þannig festist námið betur í þinn eigin skilning.
Þú opnar hvern flokk hér neðar til að sækja verkefnin og leiðbeiningar um hvernig þú vinnur þau.
Verkefni með nokkrum algengum orðum sem skiptir miklu máli að skilja í öllu námi.
Upprifjun á stafrófinu, atkvæðum, samsettum orðum o.fl.
Upprifjun á merkingu nafnorða og helstu beygingum.
Upprifjun á merkingu lýsingarorða og helstu beygingum.
Upprifjun á merkingu sagnorða og helstu beygingum.
Kennari ákveður hvort þú vinnur þetta verkefni um bullorð og orðflokka.
Athugið að námsmarkmið sem sett eru við þessi hæfniviðmið eru birt í leiðsagnarheftinu.
Nemandi getur...
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um tungumálið, þróun og einkenni þess og nýtt hana í eigin málnotkun (ísl-mál),
áttað sig á fjölbreyttum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og beitt mismunandi málsniði eftir efni og tilefni í ræðu og riti (ísl-mál),
áttað sig á og beitt sköpunarmætti tungumálsins og nýtt það m.a. við ritun, tal, við nýyrðasmíð, í orðaleikjum og skáldskap (ísl-mál),
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra (ísl-mál),
nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess (ísl-mál),
skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi (lykilhæfni).
Nemandi getur áttað sig á beygingarlegurm og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra.
*Hæfniviðmið sem unnið er með í málebru eru úr Aðalnámskrá grunnskóla 2024, kafla 19. íslenska og kafla 18. lykilhæfni.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði