Vantar þig að rifja upp ákveðið hugtak? Þá getur þú skoðað stutt myndband sem útskýrir það á þessari síðu.
Málvísir er handbók í málfræði fyrir grunnskólastig.
Í bókinni eru stuttar skýringar á öllum hugtökum sem nemendur eiga að vinna með í grunnskólanum.
Orðflokkagreiningarappið er þróað af Hildi Ýri Ísberg, íslenskukennara í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þú getur slegið inn hvaða orð sem er og appið hjálpar þér að finna orðflokkinn með því að leggja spurningar fyrir þig um beygingar og virkni orðsins.
Vefurinn m.is er einfaldur vefur til að fletta upp merkingu og beygingum orða.
Á vefnum er hægt að þýða orð og setningar úr íslensku, ensku og pólsku.
Einnig er hægt að fletta upp merkingu málfræðihugtaka á einfaldan hátt.
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls er vefur sem sýnir þér allar beygingarmyndir allra orða í íslensku - og ekki veitir af. Mörg orð í íslensku taka á sig mjög margar ólíkar beygingarmyndir. Það er eðlilegt að kunna þær ekki allar, og vita ekki alltaf hvernig ólíkar myndir orða eru skrifaðar. Þá er gott að hafa bin.arnastofnun.is til að skoða málin.
Vefurinn malid.is er safn vefsíða sem fjalla um íslenskt mál á margvíslegan hátt. Á þessum vef er hægt að fletta upp upplýsingum um stafsetningu, orðskýringar, beygingarmyndir, skyldleika orða og margt fleira.
Þegar orðið er skráð í leitarreitinn efst á síðunni opnast þær orðabækur á listanum sem geyma upplýsingar um þetta tiltekna orð.
Neðst í vinstra horninu á upphafssíðu malid.is er merki Árnastofnunar. Þegar það er opnað birtist list yfir alla þá vefi sem Árnastofnun hefur umsjóna með. Þar finnið þið til dæmis:
Skrambi, þar sem hægt er að setja inn texta til að leita að stafsetningarvillum.
Nýyrðavefurinn, þar sem skoða má nýjustu orðin í íslensku máli. Sum orðin eru svo ný að þau eru ekki enn komin inn í íslensku orðabókina!
Á Selfossi hefur verið þróað gott kennsluefni í íslensku sem heitir Skerpa. Hugtakalisti úr þessu námsefni er aðgengilegur á netinu og í honum má finna skýringar á fjölda málfræðihugtaka.
Á vefnum Málið í mark finnur þú gagnvirkar málfræðiæfingar. Æfingarnar hjálpa þér að læra að þekkja orðflokkana og beygingar orða.
Gullvör er verkefnabók í málfræði fyrir elsta stig grunnskólans. Í bókinni eru stuttar og skýrar útskýringar á öllum hugtökum sem nemendur vinna með í grunnskólanum. Það eru líka stutt verkefni með hverju hugtaki og gott að nýta þau til að æfa hugtakið sem lesið er um.
Á skólavefnum má finna margvíslegt námsefni tengt málfræði. Margir skólar hafa aðgang að vefnum fyrir nemendur sína en það er líka hægt að kaupa áskrift að vefnum fyrir þá sem vilja nota hann heima hjá sér.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði