Í leiðsagnarhefti sérðu hvað þú ert að þjálfa í málebru verkefnaheftunum. Merktu við það sem þú skilur og ert búið að vinna. Sýndu kennaranum þínum af og til hvernig þér gengur og fáðu endurgjöf svo þú sjáir hvort þú sért á réttri leið eða þurfir að þjálfa eitthvað betur.
Lestu vel um efnið í glósum og námsbókum áður en þú byrjar að vinna verkefnaheftin.
Talaðu við vini um efnið á meðan þú vinnur og hjálpist að við að finna lausnir – þannig læra allir meira.
Skrifaðu þín eigin svör – þannig festist námið betur í þinn eigin skilning.
Þú opnar hvern flokk hér neðar til að sækja verkefnin og leiðbeiningar um hvernig þú vinnur þau.
Verkefni með nokkrum algengum orðum sem skiptir miklu máli að skilja í öllu námi. Æfingar í notkun uppflettirita og upprifjun á no., lo. og so. Æfingar í samsettum orðum og margræðum orðum.
Unnið með hugtakið málsnið, textaskrif út frá námsorðaforða á þrepi 2 og gervigreind notuð til að skoða ólík málsnið texta.
Unnið með fjölbreytta málnotkun. Æfingar með notkun orðasambanda, orðatiltækja og málshátta.
Upprifjun á nafnorðum og lýsingarorðum, merkingarlegum einkennum þeirra og fallbeygingu. Æfingar í að þekkja töluorð (frumtölur og raðtölur). Æfingar í að stafsetja rétt n/nn í lok orða.
Upprifjun á sagnorðum. Æfingar í að þekkja muninn á hjálparsögnum og aðalsögnum. Æfingar í persónubeygingum sagnorða og sérkennum ópersónulegra sagnorða. Umfjöllun um þágufallssýki.
Æfingar í að finna stofn nafnorða, lýsingarorða og sagnorða og skoða hvernig það getur stutt við stafsetningu að finna stofn orða.
Upprifjun og æfingar í notkun uppflettirita um málið.
Kennari lætur þig vita hvort þú eigir að vinna þetta hefti.
Athugið að námsmarkmið sem sett eru við þessi hæfniviðmið eru birt í leiðsagnarheftinu.
Nemandi getur...
beitt helstu atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað til þess reglur um réttritun og önnur hjálpartæki,
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um tungumálið, þróun og einkenni þess og nýtt hana í eigin málnotkun (ísl-mál),
áttað sig á fjölbreyttum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og beitt mismunandi málsniði eftir efni og tilefni í ræðu og riti (ísl-mál),
áttað sig á og beitt sköpunarmætti tungumálsins og nýtt það m.a. við ritun, tal, við nýyrðasmíð, í orðaleikjum og skáldskap (ísl-mál),
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra (ísl-mál),
beitt fleygum orðum, algengum orðtökum, málsháttum og föstum orðasamböndum í máli sínu (ísl-mál)
nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess (ísl-mál),
skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi (lykilhæfni).
Nemandi getur...
beitt stafsetningu og greinarmerkjasetningu af nokkru öryggi.
beitt þekkingu sinni á málfræði í umræðu um tungumálið, einkenni þess og margbreytileika og beitt því á fjölbreyttan hátt í ræðu og riti.
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra.
nýtt sér fjölbreytt hjálpartæki til að styðja við málnotkun sína.
*Hæfniviðmið og matsviðmið sem unnið er með í málebru eru úr Aðalnámskrá grunnskóla 2024, kafla 19. íslenska og kafla 18. lykilhæfni.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði