Í leiðsagnarhefti sérðu hvað þú ert að þjálfa í málebru verkefnaheftunum. Merktu við það sem þú skilur og ert búið að vinna. Sýndu kennaranum þínum af og til hvernig þér gengur og fáðu endurgjöf svo þú sjáir hvort þú sért á réttri leið eða þurfir að þjálfa eitthvað betur.
Hæfni sem unnið er að:
að þekkja hugtökin myndtala, myndnúmer, reikniregla/formúla, talnamynstur, fasti og breyta
að geta búið til reglu út frá mynstri
að geta sett fram reglur fyrir talnamynstur og myndmynstur
að geta unnið með mynstur
að geta sett fram reglur í formi stæða/jafna með óþekktri stærð n
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum beinar formúlur og rakningarformúlur
að geta búið til reglu út frá mynstri
að geta búið til mynstur út frá reglu
að geta búið til eigið mynstur og reiknireglur
að beita röð reikniaðgerða rétt
að leysa jöfnur með skýrum útreikningum
að vinna með mynstur þar sem ferningstölur eru hluti af mynstrinu
að geta leyst stæður/jöfnur til að finna myndtölur út frá myndnúmeri
Hæfni sem unnið er að:
að þekkja hugtökin þraut, þrautseigja, rökhugsun, rökstuðningur, tilgáta, prófun, lausnarleit, lausnarleið, krosstafla, útilokunaraðferð, útsjónarsemi
að geta leyst og unnið með ég hugsa mér tölu þrautir
að geta sýnt þrautseigju og hugkvæmni við lausn verkefna og þrauta þar sem lausnarleið er ekki augljós fyrirfram
að geta greint hvaða upplýsingar skipta máli við lausnarleit
að geta notað fjölbreyttar leiðir við leit að lausnum
að geta nýtt sér röð reikniaðgerða og andhverfa aðgerðir við að leysa algebruþrautir
að geta nýtt sér algebrustæður og jöfnur til að leysa algebruþrautir
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum þáttur, stæða, frumtala, frumþáttur og stærsti sameiginlegi þáttur
að þátta stæður
að finna stærsta sameiginlega þátt í stæðu
að vinna með ummál pg flatarmál marghyrninga í stæðum
að finna frumþætti og frumþátta tölur og stæður
að margfalda inn í sviga (dreifireglan)
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum y-gildi jöfnu, x-gildi jöfnu og hnit.
að leysa jöfnur.
að leysa dæmi í tengslum við daglegt líf með jöfnum.
að leysa orðidæmi út frá jöfnum.
að lesa gildi x eða y út frá línuriti.
að skrifa jöfnu í hnitakerfi.
að teikna línurit út frá jöfnu.
að setja jöfnu upp í töflu.
að búa til orðadæmi út frá jöfnu.
Hæfni sem unnið er að:
að skrifa stæður og draga saman líka liði
að túlka niðurstöður annarra og prófa lausnir
að nota röð reikniaðgerða
að efla veldareikning í bókstafareikningi
að finna gildi stæða
Hæfni sem unnið er að:
að þekkja hugtökin myndtala, myndnúmer, formúla, fasti, reikniregla, ferningstala, bein formúla og rakningarformúla
að geta teiknað upp næstu myndir í mynstri.
að geta sett fram beinar formúlur út frá mynstri.
að geta sett fram rakningarformúlur út frá mynstri.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði