Verkefnin eru í nokkrum efnisflokkum.
Þú opnar hvern flokk til að sækja verkefnin og leiðbeiningar um hvernig þú vinnur þau.
Hæfniviðmið sem unnið er að á þrepi 3:
Getur sett upp, túlkað og gagnrýnt stærðfræðilegt líkan af raunverulegum aðstæðum. Það getur m.a. falið í sér reikning, teikningar, myndrit, jöfnur og föll.
Getur sett fram og notað mismunandi framsetningu sama fyrirbæris, hvort sem um er að ræða hlutbundna, myndræna, munnlega eða algebrulega framsetningu eða með töflu og grafi.
Getur lesið úr táknmáli stærðfræðinnar, notað það á merkingarbæran hátt, t.d. þýtt af daglegu máli yfir á táknmál stærðfræðinnar og skilið þær leikreglur sem gilda um meðferð þess.
Getur tjáð sig um stærðfræðileg efni munnlega, skriflega og myndrænt, af nákvæmni og túlkað framsetningu annarra á stærðfræðilegu efni.
Getur valið og notað margvísleg verkfæri, þar með talin tölvutækni, gert sér grein fyrir möguleikum þeirra og takmörkunum, notað þau markvisst til að rannsaka stærðfræðileg efni og setja fram niðurstöður sínar.
Getur tekið þátt í að þróa skipulega fjölbreyttar lausnaleiðir, m.a. með notkun upplýsingatækni.
Getur lesið stærðfræðilegan texta, skilið og tekið afstöðu til upplýsinga sem settar eru fram á táknmáli stærðfræðinnar.
Getur notað undirstöðuhugtök talnafræðinnar.
Getur nýtt sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna og notað þá þekkingu við útreikninga og mat á þeim.
Getur reiknað með ræðum tölum, m.a. við lausnir á jöfnum og öðrum viðfangsefnum algebru.
Getur notað undirstöðuhugtök algebrunnar.
Getur unnið með talnarunur og rúmfræðimynstur til að rannsaka, koma skipulagi á og alhæfa um það á táknmáli algebrunnar og sett fram stæður með breytistærðum.
Getur leyst jöfnur og einfaldar ójöfnur.
Getur ákvarðað lausnir á jöfnum og jöfnuhneppum með reikningi og myndritum og lýst sambandi breytistærða með föllum.
Getur túlkað jöfnur í hnitakerfi og notað teikningar í hnitakerfi til að leysa þær.
Hæfni sem unnið er að:
að lesa jöfnur
að skrifa jöfnur
að leysa jöfnur
að vinna með jöfnur í dæmum tengdu daglegu lífi
að æfa betur aðferðir og hæfni sem hefur áður verið lögð inn
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum graf jöfnu, gildistafla, skurðpuntur við y-ás, hallatala og jafna beinnar línu
að sýna samband stærða með orðum, jöfnum, tölum og gröfum
að kunna að teikna graf jöfnu
að lesa jöfnu beinnar línu af grafi
að geta lesið skurðpunkt við y-ás af grafi og af jöfnu línu
að geta fundið hallatölu út frá grafi eða jöfnu línu
að þekkja hvað a og b stendur fyrir í jöfnu beinnar línu
að teikna gröf í Geogebra
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum skurðpuntur við y-ás, hallatala, jafna beinnar línu, breytuliður, fastaliður
að skrá jöfnu út frá grafi eða gildistöflu
að geta lesið hallatölu og skurðpunt við y-ás út frá grafi eða gildistöflu
að geta leyst þrautir með gröfum
að geta reiknað út hnit út frá jöfnum
að geta lesið lausn einfaldrar jöfnu út frá grafi
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum fall, fallstæða, fallgildi, línulegt fall og ólínulegt fall
að lýsa og bera kennsl á föll
búa til og nota töflur með upplýsingum, sem byggjast á reynslu og tilraunum til að teikna föll í hnitakerfi
að lýsa aðstæðum úr daglegu lífi með föllum
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum hlutfallsstuðull, hlutfall og rétt hlutfall.
að reikna hlutfall
að vinna með hlutafallareikning
að skrá fallstæður
að búa til gildistöflur út frá fallastæðu
að teikna graf út frá fallstæðu/gildistöflu
að bera kennsl á rétt hlutfall og öfugt hlutfall
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði