Kennari aðstoðar þig við að finna á hvaða þrepi þú byrjar að vinna. Síðan heldur þú áfram í réttri röð eftir það.
Mundu að hafa leiðsagnarheftið alltaf hjá þér og merkja jafnóðum við það sem þú hefur náð tökum á.
Þegar við lærum að tala, þá lærum við að tala rétt!
Málfræði er lýsing á því hvernig við tölum. Málfræði getur lýst góðu og réttu máli, en líka slæmu og röngu.
Málfræði getur hjálpað okkur með stafsetningu.
Málfræði getur hjálpað okkur að skrifa betri texta - og fá fólk til að hlusta betur á okkur.
Málfræði hjálpar okkur að skilja af hverju okkur finnst ekki í lagi að orða hlutina hvernig sem er. Finnst þér t.d. í lagi að ég segi þessa sömu málsgrein svona: "Málfræði að hjálpa við að skilja af hverju við finnst ekki í lagi að orða hlutur hvernig sem að vera"?
Ef þú er byrjað á verkefni en veist ekki hvað þú átt að gera, eða getur ekki klárað það þá skaltu:
Fletta upp atriðinu sem þú ert að vinna með í uppflettiriti. Skoða svo hvort þú getir haldið áfram.
Tala við vin og kanna hvort hann geti hjálpað þér að skilja verkefnið.
Geyma verkefnið og fara á fyrra þrep. Til dæmis ef þú varst að reyna við verkefni á þrepi 3., fara þá frekar í verkefni sem þú átt eftir að klára á þrepi 2. eða 1.
Tala við kennara og biðja um hjálp.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði