Í leiðsagnarhefti sérðu hvað þú ert að þjálfa í málebru verkefnaheftunum. Merktu við það sem þú skilur og ert búið að vinna. Sýndu kennaranum þínum af og til hvernig þér gengur og fáðu endurgjöf svo þú sjáir hvort þú sért á réttri leið eða þurfir að þjálfa eitthvað betur.
Þú opnar hvern flokk hér neðar til að sækja verkefnin og leiðbeiningar um hvernig þú vinnur þau.
Hæfni sem unnið er að:
að þekkja og geta reiknað eftir röð reikniaðgerða.
að þekkja hugtökin svigi, röð aðgerða, stæða, jafnaðarmerki og liður.
að strika undir liði áður en dæmi er reiknað.
að leysa einfaldar talnarunur.
Hæfni sem unnið er að:
að draga saman líka liði.
að þekkja hugtakið breyta.
að reikna út gildi stæða.
að þekkja reglur með mínus í margföldun og deilingu.
Hæfni sem unnið er að:
að þekkja hugtökin algebrustæða, fastaliður og breytuliður.
að skrifa algebrustæður út frá orðadæmum og rúmfræðiformum.
að margfalda inn í sviga.
Hæfni sem unnið er að:
skilningi á hugtökunum jafna, jafngild, jafnaðarmerki, vinstri og hægri hlið jöfnu og andhverfar aðgerðir.
að leysa einfaldar jöfnur.
að nota andhverfar aðgerðir til að leysa jöfnur.
að skrifa jöfnur.
að útskýra jöfnur með orðum.
Hæfni sem unnið er að:
að þekkja hugtökin þríhyrningur, langhlið, skammhlið, ferningstala og ferningsrót.
að þekkja ólíkar gerðir og eiginleika þríhyrninga.
að öðlast skilning á ferningstölum, ferningsrót og öðru veldi í reikningi.
að nota reglu Pýþagórasar í reikningi.
Athugið að námsmarkmið sem sett eru við þessi hæfniviðmið eru birt í leiðsagnarheftinu.
Nemandi ...
notar hugtök og táknmál stærðfræðinnar til að setja fram, tákna og leysa hversdagsleg og fræðileg verkefni
nýtir sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna og þekkingu sína á talnafræði við útreikninga
vinnur með talnarunur og mynstur á skipulegan hátt og lýst þeim með táknmáli algebrunnar
einfaldar algebrustæður og leyst jöfnur með einni óþekktri stærð
reiknar með veldum og ferningsrótum í einföldum tilvikum
notar hugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að lýsa eiginleikum fræðilegra fyrirbrigða
beitir þekktum eiginleikum lína, þríhyrninga og annarra marghyrninga til að reikna hliðarlengdir og horn, reiknað og útskýrt tengsl milli grundvallareiginleika hrings, útskýrt og beitt reglu Pýþagórasar
getur skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi (lykilhæfni)
*Hæfniviðmið sem unnið er með í málebru eru úr Aðalnámskrá grunnskóla 2024, kafla 25. stærðfræði og kafla 18. lykilhæfni.
Kennarar sem vilja fá aðgang að lokuðu svæði með skapalónum á canva.com, ítarefni, prófum og svarheftum senda beiðni og google netfang á höfunda málebru:
Heiða Björg Árnadóttir, algebra
Brynhildur Sigurðardóttir, málfræði