Social Media Vs. Reality
Are you living an Insta lie?
Verkefnalýsing
Horfðu á myndbandið (ca. 3 mín).
Svaraðu eftirfarandi spurningum í Word eða munnlega í myndbandi.
Finnst þér myndbandið raunverulegt? Af hverju/ Af hverju ekki?
Hvernig hefur samfélagsmiðlanotkun áhrif á líf þitt? Taktu a.m.k. tvö dæmi um jákvæð áhrif og tvö dæmi um neikvæð áhrif.
Ímyndaðu þér að þú sért foreldri einhvers í myndbandinu, hvaða ráðleggingar myndir þú gefa viðkomandi?
Hvað eyðir þú miklum tíma á samfélagsmiðlum á dag? Finnst þér það hæfilegur tími?
Getur þú ímyndað þér að vera viku eða mánuð án samfélagsmiðla? Af hverju/ Af hverju ekki?
Leitaðu að instagram vs. reality myndum á google og finndu mynd sem þér finnst skemmtileg/fyndin og settu neðst í skjalið. Þú mátt líka búa til þannig mynd sjálft ef þú vilt.
Leiðsagnarhefti