Lífið er leikur
Í þessu Stapamixi eru fjögur (4) skylduverkefni sem unnin eru bæði einstaklingslega og í hópum. Í verkefnunum er áhersla lögð á framsögn og framkomu. Þeim er skilað í kennslustundum og á Teams. Í Lífið er leikur skiptir samstarf og skipulag mjög miklu máli og dagleg vinnusemi nemenda er metin í leiðsagnarhefti. Samhliða skylduverkefnunum þarf hver og einn að velja sér valverkefni til að vinna.
Kynning á Lífið er leikur
Á fyrsta degi þemans var farið yfir þessar glærur með öllum nemendum.
Helstu dagsetningar - Skiladagar
Fimmtudagur 23. mars:
Litabækurnar á skólavefnum
Föstudagur 24. mars:
Segðu frá bók
Fimmtudagur 30. mars:
Bekkurinn búinn að lesa leikritið þrisvar, allir komnir með námsmat
Allt tilbúið fyrir árshátíðina
Skylduverkefni
Valverkefni
Leiðsagnarhefti
Hér getið þið skoðað leiðsagnarhefti sem unnin eru til að halda utan um námsmat í skylduverkefnum. Í heftunum sjá nemendur hvaða hæfniviðmið þeir eru að vinna að í verkefnunum og nánari skýringar á því hvað þeir þurfa að gera til að þjálfa þessa hæfni.