Kveikið á bakaraofninum og stillið á 200°C og blástur
170 g brætt smjör
Bræðið smjörið og látið kólna örlítið.
1 1/2 dl sykur
1 1/2 dl púðursykur
Smjöri, púðursykri og sykri hrært mjög vel saman.
2 egg
Eggjum bætt út í, einu í einu.
5 dl hveiti
1 tsk matarsóti
1 tsk lyftiduft
3 tsk vanillusykur
1 dl kakó, sigtað
Því næst er þurrefnum blandað saman við.
2 1/2 dl súrmjólk með karamellubragði
1 dl sjóðandi heitt vatn
Súrmjólk og vatni bætt út í að lokum og hrært.
Smyrjið bökunarformið eða ofnskúffuna.
Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 20 mín eða þar til gaffall eða prjónn kemur hreinn úr.
Krem:
75 g mjúkt smjör
75g mjúkt smjörlíki
Þeytið smjörið og smjörlíkið með rafmagnsþeytara. Því lengur því betra.
200 g flórsykur
4.5 msk kakó
Sigtið flórsykur og kakó út í og þeytið saman við smjörið.
2 msk rjómi
1 tsk vanilludropar
Að lokum er vanilludropum og rjóma bætt saman við og haldið áfram að þeyta.
Smyrjið kreminu á kökuna þegar hún hefur kólnað alveg