1 dl heilhveiti
1 dl haframjöl
1/2 tsk. lyftiduft
1/8 tsk. salt
2 tsk. púðursykur
Hrært saman í skál
1 egg
1 msk. matarolía
1 dl + 1 msk. mjólk
Bætt út í og hrært vel i með sleif
Hita pönnukökupönnu á meðal hita í uþb. 2 mínútur, spreyið pam spreyi á pönnuna
Setjið deigið á pönnuna með matskeið, hæfilegt að setja 2-3 lummur í hvert sinn
Þegar yfirborðið fer að þorna, snúið lummunum við, notið steikingarspaða, steikið hinum megin í styttri tíma eða þar til þær fara að brúnast aðeins. Raðið saman á disk og endurtakið. Uppskriftin gefur ca. 10-15 lummur.