200 gr döðlur
175 gr. smjör
60 gr púðursykur
Sett saman í pott og er látið sjóða þar til döðlurnar eru orðnar eins og karamella. Passa að hræra í allan tímann.
3 1/2 dl Rice krispies
Er hrært saman við og velt vel þar til allt Rice krispísið er orðið vel blandað saman við. Sett í form og þrýst vel út í alla kanta. Reyna að hafa eins slétt og hægt er, gott að nota sleikju til að slétta úr þessu.
100 gr. suðursúkkulaði
Brætt í örbylgjunni, mjög varlega, fer eftir ofnum en gott að nota aðferðina að telja hringina sem ílátið snýst inn í ofninum, fyrst þrír, taka út og hræra í, síðan tveir taka út og hræra í, ef það dugar ekki, setja aftur inn og láta snúast tvo hringi og hræra í. Súkkulaðið er sett yfir gottið og látið harðna vel áður en borðað er.