Kveikið á bakaraofninum og stillið á 200°C og blástur
1 dl volgt vatn
2 msk. olía
1/2 tsk. salt
1 1/2 tsk. þurrger
Blandað saman í skál og hrært vel í
1 dl heilhveiti
1 dl hveiti
Blandað saman við, hrært í og síðan hnoðað. Skipt niður í 2 hluta
Hvor aðili geri sína eigin pizzu, fletja út botninn, hægt að hafa þematengt, t.d. form, dýr, farartæki osfrv. frumlegheit skemmtileg. Ofan á botnin er smurt þunnt lag af sósu, síðan er settur ostur og að lokum það álegg sem til er og hentar hverjum og einum. Um að gera að prófa sig áfram.