Kveikið á bakaraofninum og stillið á 225°C og blástur
100 ml mjólk
1 msk sykur
1½ tsk þurrger
Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir, látið standa í 15 mínútur.
300 gr hveiti
½ tsk salt
1 tsk lyftidift
2 msk olía
100 ml hreint jógurt
Blandið síðan hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrt saman við gerblönduna.
Hnoðið deigið þar til það verður mjúkt, bætið við svolitlu hveiti ef brauðið er mjög blautt. Látið hefast við stofuhita í 30 mín.
½ msk Maldon salt + ½ msk garam masala kryddblanda
Blandið Maldonsaltinu og kryddblöndunni saman á disk.
Skiptið deiginu í 8 hluta og hnoðið kúlur. Fletjið síðan kúlurnar út nokkuð þunnt og þrýstið þeim ofan í kryddblönduna.
Raðið brauðunum á plötu sem er klædd bökunarpappír og bakið í 5–7 mínútur.
Bræðið smjör og hvítlauk saman og smyrjið brauðin með því þegar þau koma úr ofninum.