Kveikið á bakaraofninum og stillið á 210°C og blástur
Epli, 1-2 stk
Skerið eplin í litla bita. Raðið þeim í bökunarformið sem hefur verið smurt.
½ msk kanill
½ msk sykur
Dreifið kanilsykri yfir.
¼ dl smjör
¼ dl púðursykur
¼ dl hveiti
¼ dl haframjöl
75 gr súkkulaði dropar
Blandið saman smjöri, púðursykri, hveiti haframjöli og súkkulaðidropum saman, gott að nota bara puttana þar til þetta er farið að haldast nokkuð vel saman. Dreifið úr þessu yfir eplin, svona eins og þið væruð að dreifa osti yfir pizzu.
Bakist í ofni í ca. 20 mín