Þróunaráætlun

Þróunaráætlun

Hér er hægt að sjá þróunaráætlun Grunnskóla Hornafjarðar fyrir tímabilið 2020-2023.

2021-2022 Þema hvers mánaðar

Afmælisdagskrá skólaárið 2021-2022

Af hverju að fagna einu sinni þegar þú getur fagnað oft? Á afmælisári Skóla á grænni grein fær hver mánuður sitt þema og hvetjum við skóla til að taka með einhverjum hætti þátt í dagskránni.

Mánaðarlega munum við senda frá okkur litla fræðsluafmælispakka sem innihalda m.a. stutta fræðslu um þema mánaðarins. Nánari upplýsingar koma á vef grænfánans þegar nær dregur.


Sameiginlegur hátíðardagur 25. apríl 2022

Takið frá daginn 25. apríl 2022! Þá höldum við sameiginlegan grænfána hátíðardag – á Degi umhverfisins.

#grænfáninn20ára

Þema hvers mánaðar

September: Plast

Október: Loftslagsbreytingar og valdefling

Nóvember: Orka og vistspor/kolefnisspor

Desember: Neysla og hringrásarhagkerfið

Janúar: Matur og grænkerar

Febrúar: Grenndarnám og átthagar

Mars: Fataneysla og fatasóun

Apríl: Hnattrænt jafnrétti, lífsgæði og forréttindi

Sameiginleg afmælishátíð allra grænfánaskóla 25. apríl.

Maí: Lífbreytileiki

Júní: Vistheimt