19.1
Megintilgangur náms og kennslu í íslensku er að nemendur fái tækifæri til að efla málnotkun, tjáningu og sköpun í töluðu og rituðu máli, nota málið og kynnast mætti þess og fjölbreytileika í daglegu lífi, leik og starfi. Með tungumálinu hugsar fólk, talar, miðlar og lærir, þróar sjálfsmynd sína, tjáir tilfinningar og hugsanir og skilur líðan og hugsun annarra.
Skólinn er frá upphafi skólagöngu virkur þátttakandi í máluppeldi barns, ásamt heimili þess, og er það réttur hvers barns að öðlast hæfni í tungumáli. Traust kunnátta í móðurmáli er ein meginforsenda samskipta, miðlunar og menntunar. Lestur er mikilvægur þáttur í að afla sér þekkingar og tjáning í ræðu og riti er ein af nauðsynlegum forsendum þátttöku í samfélaginu. Þetta á einnig við um nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Um íslensku í Aðalnámskrá grunnskóla
Nemendur fá tækifæri til að efla málnotkun, tjáningu og sköpun í töluðu og rituðu máli í daglegu lífi, leik og starfi.
Áhersla er lögð á að nemendur geri sér grein fyrir að tungumálið er lykill að hugsun, námi, samskiptum, sjálfsmynd og skilningi á tilfinningum og hugsunum annarra.
Engjaskóli tekur virkan þátt í máluppeldi barna frá upphafi skólagöngu í samstarfi við heimilin og styður rétt hvers barns til að öðlast trausta hæfni í móðurmáli sínu.
Lestur, ritun og munnleg tjáning eru grundvallarþættir í að afla sér þekkingar, miðla upplýsingum og taka virkan þátt í samfélaginu.
Nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn fá stuðning til að bæta íslensku við tungumálaforða sinn, öðlast góða færni og taka virkan þátt í námi, menningu og samfélagslífi.