Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Framsögn:
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir undirstöðuatriðum góðrar framsagnar,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
flutt mál sitt skýrt og af öryggi
tjáð sig með raddstyrk og raddblæ sem hæfir efninu
lesið texta upphátt skýrt og greinilega með viðeigandi áherslum
gert sér grein fyrir gildi góðrar framsagnar
aðlagað framsögn að ólíkum áheyrendahópi og/eða aðstæðum
Tjáning:
gert grein fyrir þekkingu sinni og reynslu og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir frammi fyrir hópi,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
tjáning, samskipti, rökræða
Hlustun og áhorf:
hlustað og horft af athygli á fjölbreytt efni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það og greint frá aðalatriðum,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
hlustað og horft af athygli og tjáð sig um tengingar við fyrri þekkingu og reynslu
nýtt sér efni ýmissa miðla, s.s. útvarpi, sjónvarpi, hlaðvarpi og á vef, og gert greinarmun á því sem þar er birt
hlustað/horfti og greint aðalatriði frá aukaatriðum
hlustað af athygli á upplestur bóka af mismunandi lengd
hlustað og horft með athygli á upplestur, leikið efni, ljóð, tónlist og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir á efninu á gagnrýninn hátt
valið efni til að hlusta/horfa á með gagnrýnum hætti
valið efni til að hlusta/horfa á með gagnrýnum hætti
Nýting miðla:
nýtt sér myndefni og stafrænt efni á gagnrýninn hátt og greint frá aðalatriðum þess.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
nýtt sér efni ólíkra miðla til þekkingarsköpunar
greint á milli aðal- og aukaatriða þess sem horft eða hlustað er á
endursagt og lagt mat á efni sem horft eða hlustað er á og metið gæði þess
tekið gagnrýna afstöðu til efnis sem birtist á helstu miðlum og tjáð upplifun sína
nýtt sér ólíka miðla við úrvinnslu verkefna á skapandi hátt s.s. hlaðvarp, fréttir, book creator
lagt mat á gagnsemi ólíkra miðla eftir efnisþáttum
Lesfimi:
lesið texta við hæfi á nákvæman og sjálfvirkan hátt og með tjáningu sem sýnir skilning á tilgangi og merkingu texta,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
hljóðað sig af öryggi í gegnum löng eða ókunn orð
þekkt orð og orðhluta sjónrænt sem heildir og nýtt það við lesturinn
aukið stöðugt við sjónrænan orðaforða, s.s. orðaforða námsgreina og sjaldgæfan orðaforða og nýtt sér það við lesturinn
lesið fyrirhafnarlítið og með góðu flæði
nýtt sér greinarmerki og einkenni textauppbyggingar til að upplestur hljómi áheyrilega
verið fær um að beita tjáningu og raddstyrk til að tjá túlkun sína á texta
lesið og sýnt fram á skilning með því að greina frá aðalatriðum, inntaki og merkingu texta
Lestraraðferðir:
beitt lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
nýtt ákveðnar aðferðir við löng eða ný og erfið orð, s.s. að hljóða sig í gegnum þau, taka orðin í sundur eða álykta út frá samhengi
byggt upp sjónrænan orðaforða í ólíkum námsgreinum og nýtt í orðheildarlestur
tekið þátt í og nýtt sér mismunandi lestraraðferðir, s.s. samvinnulestur, leitarlestur, nákvæmnislestur og yfirlitslestur
kilið og nýtt sér mismunandi aðferðir við lestur ólíkra textategunda eftir uppbyggingu og tilgangi
skimað yfir texta fyrir lestur og nýtt sér einkenni og uppbyggingu til að taka ákvarðanir um hentuga lestraraðferð, s.s. hvað má hraðlesa og hverju má mögulega sleppa
tengt fyrri þekkingu og reynslu við efni til að spá fyrir og álykta um innihald eða framhald
nýtt fjölbreyttar aðferðir við að skilja texta, t.d. gagnvirkan lestur, kortagerð af ýmsu tagi, ritunarramma, samræður og orðanámsaðferðir
nýtt fjölbreyttar aðferðir við að skilja texta, t.d. gagnvirkan lestur, kortagerð af ýmsu tagi, ritunarramma, samræður og orðanámsaðferðir
Orðaforði:
beitt fjölbreyttum orðaforða og fyrri þekkingu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða og orðasambanda,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skráð hjá sé orð í texta sem erfitt er að skilja og leitað útskýringa á fleiri en einn hátt
notað algeng orð til að útskýra orð sem tilheyra ákveðnum fræðigreinum
sett saman tvö orð eða fleiri og til að búa til orð sem hefur nýja merkingu
notað myndefni, s.s. skýringarmyndir í fræðitexta, til að ráða í merkingu einstakra orða eða hugtaka í texta og álykta út frá samhengi
bent á ólíka notkun orða eftir aðstæðum og samhengi og unnið með gildishlaðin og margræð orð
skilið að sum orð hafa fleiri en eina merkingu og notað samhengi texta eða aðstæðna til að átta sig á merkingu
nýtt nýjan orðaforða til að bæta eigin textagerð
ráðið í merkingu orðs út frá forskeyti eða viðskeyti
rannsakað og rætt um mismunandi orðaforða sem nýttur er við upphaf, kaflaskil og niðurlag í texta
notað fjölbreyttan orðaforða sem hæfir markmiðum og lesendum hverju sinni
betrumbætt skrif sín með því að nota fjölbreyttan orðaforða
Lesskilningur:
skilið, fjallað um og dregið saman efni ólíkra texta, dregið ályktanir af efninu, greint og lagt mat á merkingu þeirra og tilgang á gagnrýninn hátt,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
rakið atburðarrás texta með eigin orðum í réttri tímaröð og gert útdrátt
beitt fyrri þekkingu og reynslu til að mynda sér skoðanir eða gera tillögur um innihald texta áður en lesið er
dýpkað skilning á efni með því að spyrja og svara ólíkum spurningum út frá texta s.s. beinna spurninga, ályktunar spurninga
nýtt sér K-V-L til að kalla fram bakgrunnsþekkingu og sem leiðbeinandi efni við lestur og þekkingaröflun
tengt efni texta við eigin upplifanir, þekkingu og reynslu og sagt frá því
rætt um og unnið á fjölbreyttan hátt með það sem er líkt og ólíkt í texta og hvernig stíll texta geti verið mismunandi
greint og unnið með lykilorð/lykilhugtök í texta
sett í orð það sem ekki er sagt í texta, útskýrt það sem lesa má milli lína
svarað spurningum úr texta á fjölbreyttan hátt, s.s. með samræðum, munnlega og skriflega
borið kennsl á hvað það er í texta sem þarfnast frekari útskýringa
Lestrarmenning:
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta og miðlað áhuga sínum og skoðunum til annarra.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
valið sér fjölbreytt lesefni út frá áhugasviði og tilgangi
nýtt sér yndislestrarstundir til að njóta fjölbreytts lesefnis að eigin vali
valið úr fjölbreyttu lesefni út frá tilgangi og markmiðum hverju sinni og rökstutt val sitt
gert sér grein fyrir því að lesefni til að velja úr er allskonar s.s. skáldsögur, smásögur, ljóð, fréttir og fræðitextar
gert sér grein fyrir því að hægt er að njóta lestrar á ýmsan hátt svo sem að lesa með augunum og eyrunum
hlustað á fjölbreytt upplesið efni
haldið formlega kynningu á áhugaverðu lesefni og rökstutt meðmæli með efninu
Lestur og túlkun bókmennta:
lesið ýmsar bókmenntir og unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
Bókmenntagreining:
beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
getur gert greinarmun á áhrifamætti ólíkra bókmenntategunda og sett í samhengi við aðra bókmenntatexta
lesið eða hlustað á heila skáldsögu við hæfi sem lesið er yfir lengra tímabil
sett sig í spor helstu sögupersóna og átt samræður um eða ritað um einkenni þeirra og líðan
tekið þátt í samræðum um bókmenntir út frá forvinnu, s.s. kortagerð, orðalistum, lýsingum, atburðaröð eða umhverfi
notað viðeigandi aðferðir og orðaforða við að draga saman aðalatriði og túlka efni sem unnið er með og tengt við fyrri þekkingu
nýtt uppbyggingu mismunandi bókmenntatexta við að greina og túlka innihald og draga ályktanir
Bókmenntaarfurinn:
Lesið einfalda texta frá fyrri tímum og áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
lesið þjóðsögur/draugasögur/ævintýri, lagt mat á þær og túlkað
lesið þjóðsögur, draugasögur og ævintýri og þekki helstu einkenni
borið saman umhverfi og atburði í sögum fyrri tíma við sögur nútímans
unnið með orðaforða frá fyrri tímum
sett sig í spor fólks á fyrri tímum í tengslum við þjóðsögur, draugasögur, goðsögur og ævintýri
kynnst einfölduðum útgáfum af Íslendingasögum og öðrum sögum frá fyrri tímum
lesið og rætt um texta frá fyrri tímum
rætt um hugtök eins og feðraveldi, jafnrétti, staða kvenna, staða þræla og þess háttar
greint og unnið með uppbyggingu mismunandi texta eins og Íslendingasögur, þjóðsögur, ævintýri, draugasögu og svo framvegis
Ljóð:
notað einföld bókmenntahugtök í umræðu og vinnu með innihald og einkenni ljóða frá ólíkum tímum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
valið sér og lesið ljóð frá mismunandi tímum
túlkað ljóð
nýtt sér orðaforðavinnu, s.s. orðalista og hugflæði sem efnivið í ljóðagerð
áttað sig á tengslum ljóða og tónlistar
þekkt íslensk ljóðskáld
þekkt og getur nýtt sér myndlíkingar í ljóðum nýti sér þulur, ferskeytlur og aðrar tegundir ljóða til að búa til eigin ljóð
skilgreint muninn á hefðbundnu og óhefðbundnu ljóði
Skrift og frágangur:
miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlausan innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skrifað læsilega og af öryggi með persónulegri rithönd
nýtt fjölbreytt skriffæri skrifað stuttan sem langan texta af öryggi og sjálfvirkni með læsilegri skrift
sýni öryggi í að skrifa með fingrasetningu á lyklaborð
skilað af sér ólíkum textum vel uppsettum og frágengnum skv. fyrirmælum
Uppbygging texta:
skrifað texta þar sem málsgreinar eru fjölbreyttar og texta er skipt upp í efnisgreinar.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skrifað fjölbreyttar málsgreinar í eigin texta
rýnt í mismunandi texta og safnað saman dæmum um fjölbreyttar málsgreinar
skrifað stuðningssetningar við gefna lykilsetningu
raðað fjölbreyttum efnisgreinum saman í lengri texta
Textategundir og málnotkun:
skipulagt og orðað texta á þann hátt sem hæfir tilefni, viðtakendum og birtingarformi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skrifað sögu sem hefur lýsandi heiti, sögupersónur, sögusvið og tíma, skýra rísandi atburðarás og lausn
skrifað ólíkar sögur sem vekja áhuga lesenda
skrifað upplýsandi texta með lýsandi fyrirsögn sem er grípandi fyrir lesandann. Upplýsingar eru greinargóðar og í samræmi við heimildir. Skrifin innihalda samantekt og vitnað er í heimildir
skrifað röksemdafærslu með lýsandi fyrirsögn þar sem skýr persónuleg skoðun eða afstaða er sett fram. Gefnar eru a.m.k. þrjár ástæður fyrir skoðun/afstöðu og byggt á staðreyndum, tölfræði eða tilvitnunum. Samantekt er í lok texta
sett upp mismunandi ritunarverk s.s. frétt, auglýsingu, smásögu, örsögu, tilkynningu, skoðanapistil
Tjáning í texta:
tjáð hugmyndir sínar, reynslu og sköpun í texta, metið, mótað og endurskrifað með hliðsjón af hjálpargögnum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
ritað ólíkar textagerðir sem bjóða upp á sköpun og persónulega tjáningu
skrifað skoðun sína og rökstutt
nýtt fyrirmyndir, leiðbeiningar og verkfæri til að rita og lagfæra texta
nýtt kortagerð (hugarkort o.þ.h.) til að skipuleggja textagerð þannig að um ferli sé að ræða frá hugmynd að lokaafurð
lagfært eigin texta eftir sjálfsmat eða leiðbeiningar annarra
nýtt sér ferlisritun til að bæta eigin ritun
gagnrýnt eigin skrif, lagfært það sem er óskýrt og skilið að ritun er ferli frá hugmynd að birtingu. Skilað af sér fullfrágengnu verki
Stafsetning og greinarmerkjasetning:
beitt algengum atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
ritað og rætt um orð þar sem framburður og ritháttur fara ekki saman og rýnt í einfaldan og tvöfaldan samhljóða
fylgt reglum um stóran og lítinn staf samkvæmt rithefð
notað helstu greinarmerki rétt í texta, s.s. punkta, kommur, upphrópunarmerki, spurningarmerki, tvípunkt og gæsalappir
nýtt sér orðabækur til að ganga úr skugga um að orð séu rétt skrifuð
nýtt sér leiðréttingarforrit og aðrar bjargir við ritvinnslu á tölvu
nýtt sér hjálparorð og aðrar bjargir við réttritun s.s. minn og mín, -an í lýsingarorðum
Einkenni málsins:
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um ýmis einkenni málsins og málnotkun sína.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
þekkt hugtökin málsgrein og efnisgrein og fjallað um þau út frá eigin texta
átt samræður þar sem nýtt eru málfræðihugtök eins og orðflokkar og beygingar, t.d. í tengslum við textavinnu
leikið sér með og þekkt mun á bundnu og óbundnu máli
leikið sér með orð og merkingu þeirra og nýtt samheiti, andheiti, orðhluta, myndlíkingar, margræðni og fleiri einkenni málsins
greint muninn á formlegu máli og óformlegu
áttað sig á og rætt um muninn á málnotkun barna og fullorðinna
áttað sig á helstu einkennum talmáls, t.d. ófullbúnar setningar, merking er bundin aðstæðum og orðræðuagnir (hikorð)
áttað sig á að tungumálið er í sífelldri þróun, t.d. ný orð verða til og önnur verða úrelt
Fjölbreytt málnotkun:
notað góðan orðaforða í ræðu og riti og nýtt sér fjölbreytt málsnið við orðmyndun, tal og ritun.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
tjáð sig með fjölbreyttum og viðeigandi orðaforða í samræðum og áttað sig á tilgangi orðaforða við ólíkar aðstæður
skoðað einkenni talaðs máls og hvaða orð eru aðallega notuð í talmáli
nýtt í eigin textasköpun ólíkan orðaforða úr mismunandi textagerðum, nýjum sem gömlum
bætt nýjum orðum í orðaforða sinn í hverri viku
áttað sig á ólíkum tilgangi orða- og málnotkunar og áhrifum þeirra, t.d. með áróðri, auglýsingum eða slagorðum
nýtt viðeigandi orðaforða til að búa til formlegan og óformlegan texta sem hæfir tilefni
borið saman og rætt um mismunandi tungumál, málnotkun og málsnið
skilið muninn á nýyrði og tökuorðum og hvers vegna er rík hefð fyrir nýyrðasmíði í íslensku
Sköpunarkraftur:
nýtt orðaforða sinn til að skapa ný orð og orðasambönd og notað þau í texta.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
unnið með fjölbreyttan orðaforða og nýtt í ræðu og riti
unnið með merkingu orða og hugtaka og kunni leiðir til að skilja merkingu orða
áttað sig á samheitum og andheitum og nýtt þau til að gera texta fjölbreyttan
leikið sér með orð og merkingu með t.d. orðaleikjum, nýyrðasmíð, rími og ljóðagerð og nýtt í eigin textasköpun
rætt um og nýtt sér fjölbreyttar hugmyndir í skapandi hugsun sem leiða til skapandi málnotkunar í ræðu og riti
unnið með orðtök, málshætti og fleyg orð og notað í ræðu og riti
fundið og skilið nýyrði og nýtt þau í töluðu máli og rituðu
Orðflokkar:
áttað sig á hvernig orðaforðinn skiptist í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og greint hlutverk og helstu einkenni þeirra.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
fallbeygt orð og nýtt sér fallbeygingu í samræðum og ritun
stigbreytt lo og nýtt sér stigbreytingu í samræðu og ritun
rætt um hvort orð í texta persónubeygjast og tíðbeygjast og í hvaða tíð orðin eru
skrifað texta í einni tíð, breytt síðan um tíð og rætt áhrif þess á textann
áttað sig á að orðflokkar skipast í orð sem beygjast og orð sem beygjast ekki
skoðað hvaða áhrif orð hafa á önnur orð þegar mynduð er setning
rætt um algeng tilbrigði í málvenju
Orðtök og málshættir:
notað algeng orðtök og málshætti í töluðu máli og rituðu og greint notagildi þeirra í texta.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
fundið málshátt eða orðtök sem hæfir tilefni
umorðað talað eða ritað mál í viðeigandi málshátt eða orðtök
tengt málshátt eða orðtök við eigin aðstæður og túlkað á skapandi hátt
áttað sig á muninum á orðtökum, málsháttum og föstum orðasamböndum
Gögn og hjálpartæki:
nýtt sér kunnáttu og færni til að fletta upp orðum í orðabókum og öðrum gagnabrunnum um tungumál.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
raðað orðum í stafrófsröð af öryggi
nýtt ólíkar gerðir orðabóka við hvers konar verkefnavinnu
raðað og fundið efni með því að beita þekkingu á stafrófinu t.d. á bókasafni og rafrænum gagnagrunnum
nýtt leiðréttingarforrit og vegið og metið tillögur forrita miðað við málfræðiþekkingu
þekkt orðabókarmynd fall- og sagnorða