Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Framsögn:
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir undirstöðuatriðum góðrar framsagnar
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
tjáð sig skýrt og af öryggi
tjáð sig með ólíkum raddstyrk og raddblæ
lesið texta upphátt skýrt og greinilega með viðeigandi áherslum
gert sér grein fyrir gildi góðrar framsagnar
aðlagað framsögn að ólíkum áheyrendahópi og/eða aðstæðum
kynnt verkefni skýrt og áheyrilega fyrir ólíkum áheyrendum
Æfingar í ólíkum framburði og framsögn: upplestur, áhorf, hlustun, fyrirmyndir, frásögn, endursögn, málhljóð, samræður.
Námsefni: efni frá kennara
Tjáning:
gert grein fyrir þekkingu sinni og reynslu og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir frammi fyrir hópi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
tjáð sig skýrt og af öryggi og haldið sig við málefnið
tekið þátt og sýnt virkni í skipulögðum samræðum/umræðum í stórum og litlum hópum
tjáð eigin skoðanir og tilfinningar með viðeigandi áherslum og látbragði
flutt undirbúið efni og haldið athygli áheyrenda
endursagt og/eða lesið upphátt fjölbreytt efni með viðeigandi áherslum og látbragði
átt skoðanaskipti við aðra og hlustað og tekið tillit til mismunandi sjónarmiða
æfa mismunandi tjáningarform, sýnikennsla, samræður, hvatning, leikir, athafnamiðað nám, leiklistaræfingar, upplestur, flutningur á efni - með og án gagna, kenna um og hlusta á ólík blæbrigði og hljóðstyrk, nýta hvert tækifæri til leikrænnar tjáningar, kenna og skoða dæmi um mun á skoðun og staðreynd og birtingarmynd þess, röksemdafærsla. Glærukynningar í ýmsum greinum.
Hlustun og áhorf:
hlustað og horft af athygli á fjölbreytt efni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það og greint frá aðalatriðum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
átt skoðanaskipti við aðra og hlustað og tekið tillit til mismunandi sjónarmiða
nýtt sér efni ýmissa miðla og gert greinarmun á því sem þar er birt
hlustað/horfti og greint aðalatriði frá aukaatriðum
hlustað af athygli á upplestur bóka af mismunandi lengd
hlustað og horft með athygli á upplestur, leikið efni, ljóð, tónlist og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir á efninu
valið efni til að hlusta/horfa á með gagnrýnum hætti
skapa tækifæri til að hlusta á fjölbreytt efni, s.s. sögur, söng, samræður og upplýsingar og ræða innihald efnisins, gefa dæmi um þátttöku í samræðum, s.s. að hlusta, spyrja spurninga, hugsa um og tengja við fyrri þekkingu og reynslu, ræða um markmið með hlustun í samræðum, endurgjöf og tengingu við fyrri þekkingu og reynslu, sýnikennsla, stöðvavinna,
Nýting miðla:
nýtt sér myndefni og stafrænt efni á gagnrýninn hátt og greint frá aðalatriðum þess.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
nýtt sér efni ólíkra miðla til þekkingarsköpunar
greint á milli aðal- og aukaatriða þess sem horft eða hlustað er á
endursagt og lagt mat á efni sem horft eða hlustað er á og metið gæði þess
tekið gagnrýna afstöðu til efnis sem birtist á helstu miðlum og tjáð upplifun sína
nýtt sér ólíka miðla við úrvinnslu verkefna á skapandi hátt s.s. hlaðvarp, fréttir, book creator
metið gagnsemi ólíkra miðla
virk hlustun, greina samtal, samræður um efni sem hlustað er á / horft á, veita nemendum aðgengi að námsefni í fjölbreyttum miðlum, gefa nemendum tækifæri til að miðla námi, þekkingu og upplýsingum í gegnum fjölbreytta miðla og skapandi skil
Lesfimi:
lesið texta við hæfi á nákvæman og sjálfvirkan hátt og með tjáningu sem sýnir skilning á tilgangi og merkingu texta.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
hljóðað sig af öryggi í gegnum löng eða ókunn orð
þekkt orð og orðhluta sjónrænt sem heildir og nýtt það við lesturinn
aukið stöðugt við sjónrænan orðaforða, s.s. orðaforða námsgreina og sjaldgæfan orðaforða og nýtt sér það við lesturinn
lesið fyrirhafnarlítið og með góðu flæði
nýtt sér greinarmerki og einkenni textauppbyggingar til að upplestur hljómi áheyrilega
verið fær um að beita tjáningu og raddstyrk til að tjá túlkun sína á texta
lesið og sýnt fram á skilning með því að greina frá aðalatriðum, inntaki og merkingu texta
styrkja áhugahvöt nemenda, vera lestrarfyrirmynd, markviss orðaforðakennsla, s.s. orð dagsins, orðarýni, orðalistar, nýyrðasmíð, orðhlutavinna, ólík merking orða.
ritháttarkennsla, umræða um einkenni og tilgang lesfimi, umræða um raddlestur og hljóðlestur, tilgang og einkenni, ræða tækni við að auka hraða í hljóðlestri, s.s. breidd sjónsviðs, hreyfing augna, fingur undir texta, athafnamiðað nám
Lestraraðferðir:
beitt lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
nýtt ákveðnar aðferðir við löng eða ný og erfið orð, s.s. að hljóða sig í gegnum þau, taka orðin í sundur eða álykta út frá samhengi
byggt upp sjónrænan orðaforða í ólíkum námsgreinum og nýtt í orðheildarlestur
tekið þátt í og nýtt sér mismunandi lestraraðferðir, s.s. samvinnulestur, leitarlestur, nákvæmnislestur og yfirlitslestur
skilið og nýtt sér mismunandi aðferðir við lestur ólíkra textategunda eftir uppbyggingu og tilgangi
skimað yfir texta fyrir lestur og nýtt sér einkenni og uppbyggingu til að taka ákvarðanir um hentuga lestraraðferð, s.s. hvað má hraðlesa og hverju má mögulega sleppa
tengt fyrri þekkingu og reynslu við efni til að spá fyrir og álykta um innihald eða framhald
nýtt fjölbreyttar aðferðir við að skilja texta, t.d. gagnvirkan lestur, kortagerð af ýmsu tagi, ritunarramma, samræður og orðanámsaðferðir
rætt um og rannsakað muninn á raddlestri og hljóðlestri með því að prófa, rýna og ræða um tilgang og einkenni
að hugsa upphátt, spá fyrir um innihald texta, skoða lykilorð, fyrirsagnir og uppbyggingu texta til að undirbúa lesturinn, skima yfir texta fyrir lestur, sýnikennsla og umræður um mismunandi lestraraðferðir
Orðaforði:
beitt fjölbreyttum orðaforða og fyrri þekkingu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða og orðasambanda.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skráð hjá sér orð í texta sem erfitt er að skilja og leitað útskýringa
notað algeng orð til að útskýra flóknari orð sem tengjast námsorðaforða
sett saman tvö orð eða fleiri og til að búa til orð sem hefur nýja merkingu
notað myndefni, s.s. skýringarmyndir í fræðitexta, til að ráða í merkingu einstakra orða eða hugtaka í texta og álykta út frá samhengi
bent á ólíka notkun orða eftir aðstæðum og samhengi og unnið með gildishlaðin orð
skilið að sum orð hafa fleiri en eina merkingu og notað samhengi texta eða aðstæðna til að átta sig á merkingu
nýtt nýjan orðaforða til að bæta eigin textagerð
ráðið í merkingu orðs út frá forskeyti eða viðskeyti
rannsakað og rætt um mismunandi orðaforða sem nýttur er við upphaf, kaflaskil og niðurlag í texta
notað fjölbreyttan orðaforða sem hæfir markmiðum og lesendum hverju sinni
bent á fleiri en einn möguleika til að segja / skrifa sama hlutinn og betrumbætt eigin textaskrif með fjölbreyttari orðaforða
markvissar samræður um orð, merkingu orða, samhengi og skilning, orð vikunnar, orðaveggir, orðaspjall, Frayer líkan. samsett orð, samheiti / andheiti, margræð orð, orða- og orðhlutavefir, orð í orði, orð úr orði, forskeyti / viðskeyti, glósutækni, athafnamiðað nám
Lesskilningur:
skilið, fjallað um og dregið saman efni ólíkra texta, dregið ályktanir af efninu, greint og lagt mat á merkingu þeirra og tilgang á gagnrýninn hátt.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
rakið atburðarrás texta með eigin orðum í réttri tímaröð og gert útdrátt
beitt fyrri þekkingu og reynslu til að mynda sér skoðanir eða gera tillögur um innihald texta áður en lesið er
dýpkað skilning á efni með því að spyrja og svara ólíkum spurningum út frá texta s.s. beinna spurninga, ályktunar spurninga
nýtt sér K-V-L til að kalla fram bakgrunnsþekkingu og sem leiðbeinandi efni við lestur og þekkingaröflun
tengt efni texta við eigin upplifanir, þekkingu og reynslu og sagt frá því
rætt um og unnið á fjölbreyttan hátt með það sem er líkt og ólíkt í texta
vakta eigin skilning, fyrirmyndir, endursögn, forspá, sögupersónur, atburður, tími, orðaforði, lesa milli lína, spyrja spurninga um texta, út fyrir texta, tengja við eigin reynslu, aðalatriði / aukaatriði, tengja við fyrri þekkingu K - V - L, söguvegur, sögukort, samanburður á textum, greina lykilorð í texta, sjá fyrir sér, hugsa upphátt, gagnvirkur lestur, athafnamiðað nám, markviss orðaforðakennsla
Lestrarmenning:
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta og miðlað áhuga sínum og skoðunum til annarra.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
valið sér fjölbreytt lesefni út frá áhugasviði og tilgangi
nýtt sér yndislestrarstundir til að njóta fjölbreytts lesefnis að eigin vali
valið úr fjölbreyttu lesefni út frá tilgangi og markmiðum hverju sinni
gert sér grein fyrir því að lesefni til að velja úr er allskonar s.s. skáldsögur, smásögur, ljóð, fréttir og fræðitextar
gert sér grein fyrir því að hægt er að njóta lestrar á ýmsan hátt svo sem að lesa með augunum og eyrunum
hlustað á fjölbreytt upplesið efni
kynnt áhugavert lesefni formlega fyrir samnemendum
Við uppbyggingu lestrarmenningar þurfa skólar að skapa lestrarhvetjandi umhverfi þar sem er fjölbreytt lesefni og umfjöllun um bækur, persónur og höfunda á öllum svæðum skólans. Tryggja ætti dagleg lestrartækifæri og gott aðgengi að ríkulegum og stöðugt uppfærðum bókakosti, reglulegum rithöfundaheimsóknum og sýna lestri og bókmenntum áhuga í verki.
Lestur og túlkun bókmennta:
lesið ýmsar bókmenntir og unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
gert greinarmun á áhrifarmætti ólíkra bókmenntategunda
lesið eða hlustað á heila skáldsögu við hæfi sem lesið er yfir lengra tímabil
sett sig í spor helstu sögupersóna og átt samræður um eða ritað um einkenni þeirra og líðan
tekið þátt í samræðum um bókmenntir út frá forvinnu, s.s. kortagerð, orðalistum, lýsingum, atburðaröð eða umhverfi
notað viðeigandi orðaforða við að draga saman og túlka efni sem unnið er með og tengt við fyrri þekkingu
nýtt uppbyggingu mismunandi bókmenntatexta við að greina og túlka innihald og draga ályktanir
kjörbókavinna, bókahópar, lestrarhópar, bókaklúbbar, gagnvirkur lestur, yndislestur, umræður, lestrardagbækur, bókaskýrsla, bókakynningar, bókablogg, bókmenntaþáttur (útvarp/sjónvarp), athafnamiðað nám, markviss orðaforðakennsla
Bókmenntagreining:
beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
endursagt sögu, komið auga á og útskýrt sjónarhorn
greint aðal- og aukapersónur sögu og sagt frá einkennum þeirra
greint og rætt um umhverfi, atburði og tíma í sögu
áttað sig á ólíkum tegundum bókmennta og frásagnaraðferð
greint boðskap í sögu og tengt við fyrri þekkingu og reynslu
sagt frá bókmenntum sem skrifaðar hafa verið fyrir börn og ungmenni og notað bókmenntahugtök eins og umhverfi, atburður, vandi, lausn, upphaf, miðja, endir
lesið texta í bundu máli og komið auga á viðlíkingar
samræður, hugarkort / hugtakakort, sögukort, gagnvirkur lestur, sögukort, hanna sögusvið, leikir og spil, athafnamiðað nám
Bókmenntaarfurinn:
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
lesið þjóðsögur/draugasögur/ævintýri, lagt mat á þær og túlkað
lesið þjóðsögur, draugasögur og ævintýri og þekki helstu einkenni
borið saman umhverfi og atburði í sögum fyrri tíma við sögur nútímans
unnið með orðaforða frá fyrri tímum
sett sig í spor fólks á fyrri tímum í tengslum við þjóðsögur, draugasögur og ævintýri
lesið og rætt um texta frá fyrri tímum
sýnikennsla, samræður, orðaforðakennsla, orðaleikir, mismunandi uppbygging og einkenni texta, s.s. ævintýri, þjóðsögur og fræðitexta, lestur, hlustun, tal og ritun, leikir og spil
rannsóknarvinna á mismunandi tíðaranda, s.s. viðtöl við eldri kynslóðir, nýting myndbanda eða annarra miðla, myndbanda- og hlaðvarpsgerð
Gagnvirkur lestur; forspá, hugtakavinna, draga saman aðalatriði, spyrja spurninga
Ljóð:
notað einföld bókmenntahugtök í umræðu og vinnu með innihald og einkenni ljóða frá ólíkum tímum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
valið sér og lesið ljóð frá mismunandi tímum.
rætt um og rýnt í innihald ljóða.
nýtt sér orðaforðavinnu, s.s. orðalista og hugflæði sem efnivið í ljóðagerð
áttað sig á tengslum ljóða og tónlistar
þekkt íslensk ljóðskáld
þekkt og getur nýtt sér myndlíkingar í ljóðum
nýti sér þulur, ferskeytlur og aðrar tegundir ljóða til að búa til eigin ljóð
skilgreint muninn á hefðbundnu og óhefðbundnu ljóði
lesa, túlka og semja ljóð,hlusta á tónlist og túlka texta, samræður, leikir og spil, þjálfun í hugmyndavinnu í kjölfar orðaforðavinnu, s.s. safna orðum og raða upp í ljóðlínu sem geti verið bull, fyndin, rímað eða haft boðskap, athafnamiðað nám
Skrift og frágangur:
miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlausan innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skrifað læsilega og af öryggi með persónulegri rithönd
nýtt fjölbreytt skriffæri
sýnt öryggi og sjálfvirkni í ritun styttri sem lengri texta
sýnt aukið öryggi í að skrifa með fingrasetningu á lyklaborð
skilað af sér ólíkum textum vel uppsettum og frágengnum skv. fyrirmælum
Skrift er þjálfun samfara ritun þar sem farið er fram á vandvirkni og vandaðan frágang.
Fingrasetning á lyklaborð þjálfuð reglulega í upplýsingatækni í gegnum vefsíðurnar Fingrafimi (mms.is), typing.com og 10fastfingers.com.
Uppbygging texta:
skrifað texta þar sem málsgreinar eru fjölbreyttar og texta er skipt upp í efnisgreinar.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skoðað og unnið með fjölbreyttar málsgreinar, stuttar sem langar
notað fjölbreyttar samtengingar til að byggja upp lengri málsgreinar
valið lykilsetningu af lista sem passar við efnisgrein
skrifað fjölbreyttar málsgreinar og sett saman í efnisgreinar
Textategundir og málnotkun:
skipulagt og orðað texta á þann hátt sem hæfir tilefni, viðtakendum og birtingarformi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skrifað sögu sem hefur lýsandi heiti, sögupersónur, sögusvið og tíma, skýra rísandi atburðarás og lausn
skrifað ólíkar sögur sem vekja áhuga lesenda
skrifað upplýsandi texta með lýsandi fyrirsögn sem er grípandi fyrir lesandann. Upplýsingar eru greinargóðar og í samræmi við heimildir
skrifað röksemdafærslu með lýsandi fyrirsögn þar sem skýr persónuleg skoðun eða afstaða er sett fram. Gefnar eru a.m.k. þrjár ástæður fyrir skoðun/afstöðu og byggt á staðreyndum, tölfræði eða tilvitnunum
sett upp mismunandi ritunarverk s.s. frétt, auglýsingu, smásögu, örsögu, tilkynningu, skoðanapistil
nýtt fyrirmyndir til þess að bæta orðaforða og notað hann í eigin ritun
rætt um og nýtt sér ólíkan tilgang og uppsetningu mismunandi textategunda í eigin ritun, s.s. glósur, skýrsla, auglýsing, bréf, fræðitexti, röksemdafærsla, skýringarmyndir
notað mismunandi orðaforða fyrir mismunandi textategund, t.d. lýsingarorð í sögugerð en hlutlaus orð í fræðitexta
skipulagt, ritað og rætt um texta út frá eigin áhugasviði
rætt um markmið sitt með tiltekinni ritun m.t.t. viðtakanda og skilið að ritun felur í sér merkingu
Tjáning í texta:
tjáð hugmyndir sínar, reynslu og sköpun í texta, metið, mótað og endurskrifað með hliðsjón af hjálpargögnum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
ritað ólíkar textagerðir sem bjóða upp á sköpun og persónulega tjáningu
skrifað skoðun sína og rökstutt
nýtt fyrirmyndir, leiðbeiningar og verkfæri til að rita og lagfæra texta
notað aðferðir eins og hugarkort, tímalínu og ramma til að skipuleggja ritun
lagfært eigin texta eftir sjálfsmat eða leiðbeiningar annarra
nýtt sér ferlisritun til að bæta eigin ritun
gagnrýnt eigin skrif, lagfært það sem er óskýrt og skilið að ritun er ferli frá hugmynd að birtingu. Skilað af sér fullfrágengnu verk
Stafsetning og greinarmerkjasetning:
beitt algengum atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
ritað og rætt um orð þar sem framburður og ritháttur fara ekki saman og rýnt í einfaldan og tvöfaldan samhljóða
fylgt reglum um stóran og lítinn staf samkvæmt rithefð
notað helstu greinarmerki rétt í texta, s.s. punkta, kommur, upphrópunarmerki, spurningarmerki, tvípunkt og gæsalappir
flett upp orðum í orðabók, ýmist í hendi eða á vef
nýtt sér leiðréttingarforrit og aðrar bjargir við ritvinnslu á tölvu
nýtt sér hjálparorð og aðrar bjargir við réttritun s.s. minn og mín, -an í lýsingarorðum
Einkenni málsins:
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um ýmis einkenni málsins og málnotkun sína.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
þekkt hugtökin málsgrein og efnisgrein og fjallað um þau út frá eigin texta
átt samræður þar sem nýtt eru málfræðihugtök eins og orðflokkar og beygingar, t.d. í tengslum við textavinnu
leikið sér með og þekkt mun á bundnu og óbundnu máli
leikið sér með orð og merkingu þeirra og nýtt samheiti, andheiti, orðhluta, myndlíkingar, margræðni og fleiri einkenni málsins
greint muninn á formlegu máli og óformlegu
áttað sig á og rætt um muninn á málnotkun barna og fullorðinna
áttað sig á helstu einkennum talmáls, t.d. ófullbúnar setningar, merking er bundin aðstæðum og orðræðuagnir (hikorð)
áttað sig á að tungumálið er í sífelldri þróun, t.d. ný orð verða til og önnur verða úrelt
Fjölbreytt málnotkun:
notað góðan orðaforða í ræðu og riti og nýtt sér fjölbreytt málsnið við orðmyndun, tal og ritun.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
tjáð sig með fjölbreyttum og viðeigandi orðaforða í samræðum og áttað sig á tilgangi orðaforða við ólíkar aðstæður
skoðað einkenni talaðs máls og hvaða orð eru aðallega notuð í talmáli
nýtt í eigin textasköpun ólíkan orðaforða úr mismunandi textagerðum, nýjum sem gömlum
bætt nýjum orðum í orðaforða sinn í hverri viku
áttað sig á ólíkum tilgangi orða- og málnotkunar og áhrifum þeirra, t.d. með áróðri, auglýsingum eða slagorðum
nýtt viðeigandi orðaforða til að búa til formlegan og óformlegan texta sem hæfir tilefni
rætt um mismunandi tungumál, málnotkun og málsnið
Sköpunarkraftur:
nýtt orðaforða sinn til að skapa ný orð og orðasambönd og notað þau í texta.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
unnið með fjölbreyttan orðaforða og nýtt í ræðu og riti
unnið með ólíka merkingu orða út frá samhengi og textagerð
áttað sig á samheitum og andheitum og nýtt þau til að gera texta fjölbreyttan
leikið sér með orð og merkingu með t.d. orðaleikjum, nýyrðasmíð, rími og ljóðagerð og nýtt í eigin textasköpun
rætt um og nýtt sér fjölbreyttar hugmyndir í skapandi hugsun sem leiða til skapandi málnotkunar í ræðu og riti
unnið með orðtök, málshætti og fleyg orð og notað í ræðu og riti
búið til nýyrði og nýtt í eigin textasköpun
Orðflokkar:
áttað sig á hvernig orðaforðinn skiptist í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og greint hlutverk og helstu einkenni þeirra.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
skilið hvað fallbeyging er og æft sig í að fallbeygja orð, aðallega munnlega
skilið hvað stigbreyting er og æft sig í að stigbreyta lo., aðallega munnlega
rætt um hvort orð í texta persónubeygjast og tíðbeygjast og í hvaða tíð orðin eru
haldið sig við sömu tíð í textaskrifum
áttað sig á að orðflokkar skipast í orð sem beygjast og orð sem beygjast ekki
Orðtök og málshættir:
notað algeng orðtök og málshætti í töluðu máli og rituðu og greint notagildi þeirra í texta.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
gert grein fyrir því hver raunveruleg merking orðtaks eða málsháttar er
umorðað talað eða ritað mál í viðeigandi málshátt eða orðtök
tengt málshátt eða orðtök við eigin aðstæður og túlkað á skapandi hátt
áttað sig á muninum á orðtökum, málsháttum og föstum orðasamböndum
Gögn og hjálpartæki:
nýtt sér kunnáttu og færni til að fletta upp orðum í orðabókum og öðrum gagnabrunnum um tungumál.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
raðað orðum í stafrófsröð
nýtt ólíkar gerðir orðabóka við hvers konar verkefnavinnu
raðað og fundið efni með því að beita þekkingu á stafrófinu t.d. á bókasafni og rafrænum gagnagrunnum
nýtt leiðréttingarforrit og vegið og metið tillögur forrita miðað við málfræðiþekkingu
þekkt orðabókarmynd fall- og sagnorða