Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Framsögn:
beitt skýrum og áheyrilegum framburði
Að nemandi geti:
tjáð sig skýrt og af öryggi
beitt röddinni á fjölbreyttan hátt
lesið aldurssvarandi texta upphátt skýrt og greinilega
gert sér grein fyrir gildi góðrar framsagnar
kynnt eigin verkefni fyrir ólíkum áheyrendum
Lesa upp fimmusögur fyrir framan bekkinn.
Æfingar í ólíkum framburði og framsögn: samlestur, kórlestur, áhorf, hlustun, fyrirmyndir, frásögn, endursögn, málhljóð, leikræn tjáning / leiklestur, samræður, upplestur. Athafnamiðað nám og leikur.
Tjáning:
sagt frá atburði eða fyrirbæri, tjáð sig frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu
Að nemandi geti:
tjáð sig skýrt og komið meiningu til skila
tekið þátt í samræðum og sagt frá eftirminnilegum atburðum eða lýst ákveðnu fyrirbæri
tjáð eigin skoðanir og tilfinningar í hópi og frammi fyrir hópi
flutt undirbúið efni og haldið athygli áheyrenda í nokkurn tíma
sýnikennsla, samræður, hvatning, raddæfingar, leikræn tjáning, endurgjöf, upplestur, leikir. Athafnamiðað nám.
Hlustun og áhorf:
hlustað og horft af athygli á valið efni og greint frá upplifun sinni
Að nemandi geti:
hlustað á efni á fjölbreyttu formi, s.s. upplestur, ljóð, söngva og leikið efni
nýtt efni frá ólíkum miðlum og gert sér grein fyrir muninum á t.d. lestexta og bíómynd
hlustað/horft og greint aðalatriði þess sem hlustað/horft var á
hlustað af athygli á upplestur bóka af mismunandi lengd
hlustað og horft með athygli á upplestur, leikið efni, ljóð, tónlist og tjáð sig um það
valið efni til að hlusta/horfa á með gagnrýnum hætti
skapa tækifæri til að hlusta á fjölbreytt efni, s.s. sögur, söng, samræður og upplýsingar, ræða innihald efnisins og gefa dæmi um þátttöku í samræðum, s.s. að hlusta, spyrja spurninga, hugsa um og tengja við fyrri þekkingu og reynslu, sýnikennsla, stöðvavinna, hvatning
Nýting miðla:
nýtt sér og endursagt efni á stafrænu formi
Að nemandi geti:
nýtt sér upplýsingar úr efni sem horft eða hlustað er á
greint aðalatriði þess sem horft eða hlustað er á
endursagt og lagt mat á efni sem horft eða hlustað er á
gert grein fyrir eigin upplifun á því efni eða upplýsingum sem unnið er með
nýtt sér stafræna miðla við úrvinnslu verkefna
virk hlustun, veita nemendum aðgengi að námsefni í fjölbreyttum miðlum, gefa nemendur tækifæri til að miðla námi, þekkingu og upplýsingum í gegnum fjölbreytta miðla og skapandi skil
Lesfimi:
Nemandi getur beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila
Að nemandi geti:
hljóðað sig af öryggi í gegnum löng eða ókunn orð
þekkt orð og orðhluta sjónrænt sem heildir og nýtt það við lesturinn
aukið stöðugt við sjónrænan orðaforða sinn
lesið með nokkuð góðu flæði þannig að lesturinn hljómar sem eðlilegt mál
stoppað við punkt og greinarskil þegar lesið er
notað röddina til að láta lesturinn hljóma eins og eðlilegt mál
lesið og sýnt fram á skilning með því að gera grein fyrir megininntaki texta
tryggja val um fjölbreytt lesefni, stafainnlögn og tengsl stafs og hljóðs, markviss vinna með hljóðkerfisvitund og sjónrænan orðaforða, markviss orðaforðakennsla, orð dagsins, orðalistar, orðskýringar
búta lengri orð í orðhluta til að auðveldar lestur, greina raddlestur nemenda og bregðast við með íhlutun og einstaklingsmiðaðri kennslu, helstu greinarmerki.
hvetja til yndislestrar, kenna og æfa raddlestrur og hljóðlestur, kenna tækni til að auka hraða í hljóðlestri, nýta leiki, spil og athafnamiðað nám
Ritvinnsla:
beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila
Að nemandi geti:
Sýnishorn á adalnamskra.is
Námsmarkmiðin stigvaxa 1.1 - 1.2 - 1.3 - 1.4
Lestraraðferðir:
þekkt og beitt einföldum aðferðum við lestur og tilgreint dæmi um ólíkan tilgang lestrar
Að nemandi geti:
lesið óþekkt orð með því að nota ákveðnar aðferðir, s.s. að hljóða sig í gegnum þau, taka orð í sundur eða álykta út frá samhengi
þekkt algengar orðmyndir sjónrænt og nýtt í orðheildarlestur
tekið þátt í og nýtt sér til aukinnar lestrarfærni aðferðir eins og kórlestur, bergmálslestur og samvinnulestur
skilið og nýtt sér áherslumun í upplestri á ólíkum textum, s.s. ljóði, sögu, auglýsingu, fræðitexta eða ævintýri m.t.t. tilgangs
skimað yfir texta fyrir lestur og rætt um einkenni og uppbyggingu hans
gagnvirkur lestur, að hugsa upphátt, spá fyrir um innihald texta, skima texta fyrir lestur, skoða lykilorð, fyrirsagnir og uppbyggingu texta til undirbúnings, nýta leiki og spil, athafnamiðað nám
Orðaforði:
beitt góðum orðaforða við að skilja texta og notað einfaldar aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða
Að nemandi geti:
bent á orð í texta sem erfitt er að skilja
notað algeng orð til að útskýra flóknari orð
tekið í sundur samsett orð til að ráða í skilning þess orðs
notað myndefni til að ráða í merkingu einstakra orða eða hugtaka í texta og álykta út frá samhengi
skilið útskýringar á nýjum orðum og notað þau í eigin aðstæðum
skilið að sum orð hafa fleiri en eina merkingu og að samhengi texta eða aðstæðna þarf til að útskýra þau
samræða, markviss orðaforðakennsla, orð vikunnar, orðaveggir, orðaspjall, Frayer líkan, samsett orð, samheiti / andheiti, orða- og orðhlutavefir, orð í orði, orð úr orði, forskeyti, ritun, leikir og spil, athafnamiðað nám
Lesskilningur:
skilið augljós efnisatriði valinna texta, greint og lagt mat á inntak þeirra og dregið einfaldar ályktanir
Að nemendur geti:
rakið atburðarrás þess sem lesið eða hlustað er á í réttri röð
spáð fyrir um efni bókar út frá bókarkápu, titli eða myndum og tengt við fyrri þekkingu
búið til spurningar úr texta og spurt námsfélaga
kallað fram bakgrunnsþekkingu og rætt um nýja þekkingu, s.s með þátttöku í K-V-L
velt fyrir sér áhrifum texta á eigin líðan og/eða tilfinningar
rætt um og unnið með það sem er líkt og ólíkt í texta
greint og unnið með lykilorð/lykilhugtök í texta
nýtt vísbendingar úr texta, orðum og samhengi til að lesa á milli lína og draga ályktanir
svarað spurningum úr texta í samvinnu við námsfélaga
gert sér grein fyrir því að mikilvægt er að leita skýringa á óþekktum orðum til að öðlast skilning á texta
vakta eigin skilning, fyrirmyndir, endursögn, forspá, sögupersónur, atburður, orðaforði, lesa milli lína, spyrja spurninga, aðalatriði / aukaatriði, tengja við fyrri þekkingu K - V - L, söguvegur, sögukort, samanburður á textum, greina lykilorð í texta, að sjá fyrir sér, hugsa upphátt, gagnvirkur lestur, leikir og spil, athafnamiðað nám, markviss orðaforðakennsla
Lestrarmenning:
valið og lesið sér til ánægju fjölbreytt lesefni sem hæfir aldri
Að nemandi geti:
valið sér lesefni út frá áhugasviði og tilgangi
nýtt sér yndislestrarstundir til að njóta fjölbreytts lesefnis að eigin vali
valið sér lesefni til þjálfunar og náms
gert sér grein fyrir því að lesefni til að velja úr er allskonar s.s. sögur, myndabækur og fræðibækur
gert sér grein fyrir því að hægt er að njóta lestrar á ýmsan hátt svo sem að lesa með augunum og eyrunum
hlustað á fjölbreytt upplesið efni
kynnt sínar uppáhalds bækur fyrir samnemendum
Frjáls lestur í Fimmu
Við uppbyggingu lestrarmenningar þurfa skólar að skapa lestrarhvetjandi umhverfi þar sem er fjölbreytt lesefni og umfjöllun um bækur, persónur og höfunda á öllum svæðum skólans. Tryggja ætti dagleg lestrartækifæri og gott aðgengi að ríkulegum og stöðugt uppfærðum bókakosti, reglulegum rithöfundaheimsóknum og sýna lestri og bókmenntum áhuga í verki.
Lestur og túlkun bókmennta:
unnið með ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum
Að nemendur geti:
Borið saman og rætt um einkenni ólíkra texta, s.s. ævintýra, ljóða og skáldsagna
lesið eða hlustað á heila skáldsögu við hæfi sem lesið er yfir lengra tímabil
tjáð sig í töluðu máli eða rituðu um líðan og/eða einkenni persónu í sögu og sett sig í þeirra spor
raðað lykilatriðum úr sögu/ævintýri/ljóði upp í atburðaröð og átt samræður út frá því
dregið saman efni sem unnið er með
áttað sig á hefðbundinni uppbyggingu sögu, ævintýra og ljóða og ólíkum tilgangi þeirra
stafainnlögn, bókahópar, lestrarhópar, bókaklúbbar, gagnvirkur lestur, yndislestur, umræður, lestrardagbækur, bókakynningar, rithöfundakynningar, leikir og spil, athafnamiðað nám, markviss orðaforðakennsla
Bókmenntagreining:
beitt eiföldum bókmenntahugtökum í umfjöllun um bókmenntir
Að nemendur geti:
endursagt sögu með upphafi, miðju og endi
sagt hverjar aðal- og aukapersónur sögu eru
teiknað upp í sögukort persónur, umhverfi, atburð/vanda og lausn ýmist eftir lestur eða við undirbúning sögugerðar
þekkt ólíkar tegundir bókmennta og skýrt frá ólíkum tilgangi þeirra
áttað sig á að sögur geta þjónað ákveðnum tilgangi, s.s. að flytja boðskap
sagt frá einni eða fleiri bókum sem skrifaðar hafa verið fyrir börn og notað bókmenntahugtök eins og persónur, umhverfi, atburður, upphaf, ljóð, saga ...
unnið með frásögn í bundnu máli þar sem kemur t.d. fyrir rím
samræður, hugarkort / hugtakakort, sögukort, gagnvirkur lestur, sögukort, hanna sögusvið, leikir og spil, athafnamiðað nám
Bókmenntaarfurinn:
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og sett sig í spor persóna og lesenda í fortíðinni
Að nemandi geti:
lesið og talað um texta frá fyrri tímum og tengt textann við eigin reynslu
þekkt muninn á skáldsögu og ævintýri
borið saman líf persóna í gömlum sögum við eigið líf í dag
unnið með orðaforða frá fyrri tímum
sett sig í spor fólks á fyrri tímum í tengslum við þjóðsögur, draugasögur og ævintýri
valið sér fyrri tíma höfund til að fá hugmyndir frá í eigin ritun
sýnikennsla, samræður, orðaforðakennsla, orðaleikir, mismunandi uppbygging og einkenni texta, s.s. ævintýri, þjóðsögur og fræðitexta, lestur, hlustun, tal og ritun, leikir og spil
rannsóknarvinna á mismunandi tíðaranda, s.s. viðtöl við eldri kynslóðir, nýting myndbanda eða annarra miðla
Gagnvirkur lestur; forspá, hugtakavinna, draga saman aðalatriði, spyrja spurninga
Athafnamiðað nám
Ljóð:
áttað sig á grunneinkennum ljóða og unnið með innihald þeirra
Að nemandi geti:
lesið eða hlustað á ljóð
rætt um innihald ljóða sem eru lesin/hlustað á
búið til ljóðlínu með aðstoð
þekkt rím og hrynjandi, s.s. í söngljóðum
nefnt dæmi um íslensk ljóðskáld
fundið myndlíkingu í ljóðum
þekkt helstu þulur og ferskeytlur
sagt frá því hvað ljóð er og samið eigið ljóð
lesa, túlka og semja ljóð, hlusta á tónlist og túlka texta, samræður, leikir og spil, þjálfun í hugmyndavinnu í kjölfar orðaforðavinnu, s.s. safna orðum og raða upp í ljóðlínu sem geti verið bull, fyndin, rímað eða haft boðskap, athafnamiðað nám
Skrift og frágangur:
dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð
Að nemandi geti:
nýtt hjálparlínur til stuðnings í skrift og haft samræmi í stærð bókstafa
skrifað alla stafi læsilega og í réttum stærðarhlutföllum
haldið rétt á skriffæri
sýnt öryggi og sjálfvirkni í ritun stuttra texta
nýtt einfalda fingrasetningu á lyklaborði
Skriftartímar
kenna stafdrætti og notkun hjálparlína, þjálfa úlnliðshreyfingar sem hjálpa til við skriftina, s.s. með krákustígum og mynstrum, kynna og æfa notkun lyklaborðs og fingrasetningu, leikir og spil, athafnamiðað nám
Uppbygging texta:
búið til setningar og málsgreinar og notað til þess algengar samtengingar
Að nemandi geti:
raðað orðum rétt í málsgrein
skrifað stutta texta með einföldum málsgreinum og helstu samtengingum
klárað málsgreinar þar sem fyrri hluti er gefinn og ólíkar samtengingar notaðar
sett skýra fyrirsögn á eigin texta
sýnikennsla í ritun, sameiginleg ritun, leiðsögn í ritun, sjálfstæð ritun, samræður um einkenni texta og uppbyggingu, meta eigin texta út frá settum viðmiðum, sjálfsmat, jafningjamat, leikir og spil, athafnamiðað nám
Textategundir og málnotkun:
skrifað ólíkar textategundir og skilur að hverjum texta er ætlað ákveðið hlutverk
Að nemandi geti:
skrifað sögu sem hefur lýsandi heiti, sögupersónur, flækju og lausn
skrifað upplýsandi texta með fyrirsögn og greinargóðum upplýsingum á viðfangsefni
skrifað texta með lýsandi fyrirsögn þar sem tekin er skýr afstaða til málefnis með eða á móti og beitt fleiri en einum rökum
sett upp mismunandi ritunarverk, s.s. örsögu, skoðun, hugmynd, auglýsingu
nýtt fyrirmyndir til að vinna með mismunandi uppbyggingu texta, s.s. saga, ljóð, listi, kort, skilaboð, fræðitexti
rætt um og bent á ólíkan tilgang mismunandi textategunda, s.s. minnislisti, auglýsing, fræðitexti, saga
nýtt mismunandi orðaforða eftir tilgangi texta, s.s. auglýsing, fræðitexti eða listi
skipulagt og ritað texta út frá eigin áhugasviði
rætt um markmið sitt með tiltekinni ritun m.t.t. viðtakanda og skilið að ritun felur í sér merkingu
Kenna ritun með stigskiptum stuðningi: 1) sýnikennslu í ritun; 2) sameiginleg ritun; 3) leiðsögn í ritun og 4) sjálfstæð ritun.
Umræður um ólíkar textagerðir, tilgang textaskrifa, skipulag og uppsetningu, þjálfa hugmyndavinnu og gerð hugarkorta, samræður námsfélaga, vinna með blæbrigði og merkingu orða í ólíkum textategundum, ferlisritun, ritunarsmiðjur, kynningar á eigin ritverkum (uppskeruhátíðir).
Samþætting við upplýsinga- og tæknimennt (viðmið tengd miðlalæsi og notkun heimilda)
Tjáning í texta:
sett fram eigin hugmynd í texta, metið og lagfært með eða án hjálpargagna
Að nemandi geti:
ritað sjálfsprottinn texta
skrifað texta sem felur í sér eigin skoðun eða hugmynd
nýtt leiðbeiningar eða matslista til að yfirfara texta og lagfæra samkvæmt þeim
búið til hugtakakort og skilið nytsemi þess við undirbúning eigin ritunar
lagfært með leiðsögn
skilið að ritun er ferli og kann leiðir til að skipuleggja og meta eigin ritun
rýnt í og leiðrétt eigin ritun með leiðsögn og skilið að ritun er ferli
ferlisritun, dagleg ritun, leyfa nemendum að prófa mismunandi leiðir til tjáningar í ritunarverkefnum, s.s. ljóða- og sögugerð, skrifa fréttir og auglýsingar og fræðslutexta, orðasöfn og orðalistar, orðaleikir og orðaspil, athafnamiðað nám
Stafsetning og greinarmerkjasetning:
beitt einföldum stafsetningarreglum og eiföldum reglum við greinarmerkjasetningu
Að nemandi geti:
ritað algeng orð rétt þar sem framburður og ritháttur fara ekki saman
ritað stóran staf í upphafi málsgreina
notað punkt eða spurningamerki rétt í lok málsgreina
nýtt sér hjálparorðin minn og mín í tengslum við n og nn regluna
ritunarsmiðjur, sýnikennsla, sameiginlega ritun, leiðsögn í ritun, sjálfstæð ritun, samræður, æfingar í að leiðrétta eigin texta, sóknarskrift, leikir og spil, athafnamiðað nám
Einkenni málsins:
þekkt og rætt ýmis einkenni málsins
Að nemandi geti:
greint málsgrein með því að vita að hún hefst á stórum staf og endar á punkti
skoðað hlutverk og einkenni mismunandi orða í tungumálinu og nýtt hugtök eins og sagnorð, nafnorð og beygingar
leikið sér með atkvæði og hrynjandi í bundnu og óbundnu máli
leikið sér með orð og merkingu, s.s. með því að ríma og fara í orðaleiki
skilið og greint ólíkar leiðir til þess að tjá sig
áttað sig á og rætt um muninn á málnotkun barna og fullorðinna
áttað sig á það sé munur á töluðu máli og rituðu
samræður, sýnikennsla, umræður um talmál og ritmál og mismunandi birtingarmyndir tungumálsins, sýnikennsla og vinna með áhrif mismunandi orðaforða á tungumálið, llikir og spil, athafnamiðað nám
Fjölbreytt málnotkun:
beitt töluðu máli og rutuðu af nokkru öryggi og með orðaforða og málskilningi sem hæfir aldri
Að nemandi geti:
tjáð sig með viðeigandi orðaforða í samræðum og áttað sig á t.d. hvaða orðaval er kurteist og hvað ekki
áttað sig á ólíkum tilgangi talaðs máls og ritaðs
rannsakað og skráð ólíkt upphaf og endi skáldsagna, ævintýra og fræðitexta
bætt nýjum orðum í orðaforða sinn í hverri viku
áttað sig á ólíkum tilgangi orða- og málnotkunar og áhrifum þeirra
notað fjölbreyttan viðeigandi orðaforða til að búa til formlegan texta sem hæfir tilefni
sýnikennsla og handleiðsla t.d. við að búa til orðaveggi og hugtakakort og önnur kort, lista yfir mismunandi upphaf og endi ólíkra texta, dæmi um talmál og ritmál, hjálparorð í samræðum, umræður um og rannsóknir á mismunandi uppbyggingu texta, umvefja nemendur með ríkulegum orðaforða í öllum rýmum og leggja áherslu á að þau bæti við orðum í orðaforða sinn í hverri viku, leikir og spil, athafnamiðað nám
Sköpunarkraftur:
áttað sig á sköpunarmætti tungumálsins svo sem með því að ríma og fara í orðaleiki
Að nemandi geti:
hlustað á, lesið og unnið með fjölbreytta og merkingarbæra texta
tekið þátt í umræðum um ólíka merkingu orða
leikið sér með og nýtt orð sem merkja það sama og orð sem merkja alveg öfugt
leikið sér með orð og merkingu, s.s. með því að ríma og fara í orðaleiki
unnið með þulur, rím og romsur og rætt um og prófað hugmyndir sem undirbyggja skapandi málnotkun
unnið með orðtök og málshætti
leikið sér með nýyrði og nýyrðasmíð
leiklistaræfingar, leiklestur, lestrarleikhús, hugflæði, hugmyndavinna, orðalistar og fjölbreytt orðaforðavinna, að kveðast á, nýta fjölbreytt spil og orðaleiki, athafnamiðað nám
Orðflokkar:
áttað sig á mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða
Að nemandi geti:
rætt um orð í texta sem hægt er að snerta eða ekki snerta, t.d. orð sem hægt er að setja minn, mín eða mitt fyrir aftan
rætt um orð í texta sem lýsa útliti
rætt um orð í texta eða tali yfir það sem einhver gerir og nýtt t.d. í leikrænni tjáningu orð sem hægt er að setja að fyrir framan
markviss vinna með orðaforða, s.s. orð til að lýsa eiginleikum og útliti, orð sem tákna aðgerð og orð sem hægt er að snerta eða ekki, unnið fjölbreytta texta og textagerðir og orðaforði þeirra sérstaklega skoðaður, áhersla á málfræðikennslu í gegnum samræður, leiki, spil og munnlegar æfingar með tengingu við merkingarbæra texta eða viðfangsefni sem verið er að vinna með, leikir og spil, athafnamiðað nám
Orðtök og málshættir:
leikið sér með margræðni tungumálsins svo sem í gegnum orðtök, einfalda málshætti og föst orðasambönd
Að nemandi geti:
gert grein fyrir því hvað boðskapur er
skilið að sum orð hafa fleiri en eina merkingu og nefnt dæmi um slík orð
teiknað eða tjáð með leikrænni tjáningu valda málshætti, orðasambönd og orðtök
tekið þátt í samræðum um og unnið með orðtök, málshætti og föst orðasambönd
unnið markvisst með orðaforða, haft fyrirmyndir, unnið á skapandi hátt með myndmál, líkingar, samheiti og andheiti, leikir, spil og athafnamiðað nám
Gögn og hjálpartæki:
raðað í stafrófsröð og gert sér gein fyrir notakgildi þess við leit og skipulag
Að nemandi geti:
raðað orðum í stafrófsröð eftir fyrsta staf
kynnst ólíkum gerðum orðabóka
raðað og fundið efni með því að beita þekkingu á stafrófinu
raða, flokka, skipuleggja orð, nöfn, bækur o.fl. leikir og spil, athafnamiðað nám