Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Framsögn:
beitt skýrum og áheyrilegum framburði
Dæmi um námsmarkmið:
lesið aldurssvarandi texta upphátt skýrt og greinilega
kynnt eigin verkefni fyrir ólíkum áheyrendum
Dæmi um vinnulag:
Æfingar í ólíkum framburði og framsögn:
samlestur, kórlestur, áhorf, hlustun, fyrirmyndir, frásögn, endursögn, málhljóð, leikræn tjáning / leiklestur, samræður, upplestur.
Fimma og Pals.
Tjáning:
sagt frá atburði eða fyrirbæri, tjáð sig frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu
Dæmi um námsmarkmið:
tekið þátt og sýnt virkni í samræðum, í stórum sem litlum hópum
endursagt og/eða lesið upphátt texta með viðeigandi áherslum og látbragði
tjáð eigin skoðanir og tilfinningar í hópi og frammi fyrir hópi
Dæmi um vinnulag:
sýnikennsla, samræður, hvatning, raddæfingar, leikræn tjáning, endurgjöf, upplestur, leikir.
Fimma.
Hlustun og áhorf:
hlustað og horft af athygli á valið efni og greint frá upplifun sinni
Dæmi um námsmarkmið:
hlustað af athygli og tengt við fyrri þekkingu og reynslu til að skilja það sem fram kemur
hlustað/horft og greint aðalatriði þess sem hlustað/horft var á
hlustað og horft með athygli á upplestur, leikið efni, ljóð, tónlist og tjáð sig um það
Dæmi um vinnulag:
skapa tækifæri til að hlusta á fjölbreytt efni, s.s. sögur, söng, samræður og upplýsingar, ræða innihald efnisins og gefa dæmi um þátttöku í samræðum, s.s. að hlusta, spyrja spurninga, hugsa um og tengja við fyrri þekkingu og reynslu, sýnikennsla, stöðvavinna, hvatning.
Fimma.
Nýting miðla:
nýtt sér og endursagt efni á stafrænu formi
Dæmi um námsmarkmið:
nýtt sér stafræna miðla við úrvinnslu verkefna
endursagt og lagt mat á efni sem horft eða hlustað er á
nýtt sér upplýsingar úr efni sem horft eða hlustað er á
Dæmi um vinnulag:
virk hlustun, veita nemendum aðgengi að námsefni í fjölbreyttum miðlum, gefa nemendum tækifæri til að miðla námi, þekkingu og upplýsingum í gegnum fjölbreytta miðla og skapandi skil
Lesfimi:
nýtt hugbúnað við gerð einfaldra kynninga,
Dæmi um námsmarkmið:
Ritvinnsla:
beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila
Dæmi um námsmarkmið:
Sýnishorn á adalnamskra.is
Námsmarkmiðin stigvaxa 1.1 - 1.2 - 1.3 - 1.4
Lestraraðferðir:
þekkt og beitt einföldum aðferðum við lestur og tilgreint dæmi um ólíkan tilgang lestrar
Dæmi um námsmarkmið:
Orðaforði:
beitt góðum orðaforða við að skilja texta og notað einfaldar aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða
Dæmi um námsmarkmið:
Lesskilningur:
skilið augljós efnisatriði valinna texta, greint og lagt mat á inntak þeirra og dregið einfaldar ályktanir
Dæmi um námsmarkmið:
Lestrarmenning:
valið og lesið sér til ánægju fjölbreytt lesefni sem hæfir aldri
Dæmi um námsmarkmið:
Lestur og túlkun bókmennta:
unnið með ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum
Dæmi um námsmarkmið:
Bókmenntagreining:
beitt eiföldum bókmenntahugtökum í umfjöllun um bókmenntir
Dæmi um námsmarkmið:
Bókmenntaarfurinn:
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og sett sig í spor persóna og lesenda í fortíðinni
Dæmi um námsmarkmið:
Ljóð:
áttað sig á grunneinkennum ljóða og unnið með innihald þeirra
Dæmi um námsmarkmið:
Skrift og frágangur:
dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð
Dæmi um námsmarkmið:
Uppbygging texta:
búið til setningar og málsgreinar og notað til þess algengar samtengingar
Dæmi um námsmarkmið:
Textategundir og málnotkun:
skrifað ólíkar textategundir og skilur að hverjum texta er ætlað ákveðið hlutverk
Dæmi um námsmarkmið:
Tjáning í texta:
sett fram eigin hugmynd í texta, metið og lagfært með eða án hjálpargagna
Dæmi um námsmarkmið:
Stafsetning og greinarmerkjasetning:
beitt einföldum stafsetningarreglum og eiföldum reglum við greinarmerkjasetningu
Einkenni málsins:
þekkt og rætt ýmis einkenni málsins
Dæmi um námsmarkmið:
Fjölbreytt málnotkun:
beitt töluðu máli og rutuðu af nokkru öryggi og með orðaforða og málskilningi sem hæfir aldri
Dæmi um námsmarkmið:
Sköpunarkraftur:
áttað sig á sköpunarmætti tungumálsins svo sem með því að ríma og fara í orðaleiki
Dæmi um námsmarkmið:
Orðflokkar:
áttað sig á mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða
Dæmi um námsmarkmið:
Orðtök og málshættir:
leikið sér með margræðni tungumálsins svo sem í gegnum orðtök, einfalda málshætti og föst orðasambönd
Dæmi um námsmarkmið:
Gögn og hjálpartæki:
raðað í stafrófsröð og gert sér gein fyrir notakgildi þess við leit og skipulag
Dæmi um námsmarkmið: