Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Matreiðsla:
útbúið einfaldar og hollar máltíðir með aðstoð,
Heimilisfræði 4, (kennslubók fyrir 4. bekk), bls. 5-23.
Verklegar æfingar í matargerð og bakstri.
Vinnubrögð:
farið eftir einföldum uppskriftum og notað til þess einföld mæli- og eldhúsáhöld og sinnt viðeigandi frágangi,
Heimilisfræði 4, bls. 2, 5-23, 33
Verklegar æfingar í matargerð og bakstri.
Læri að eldhúsið er sérstæður vinnustaður.
Vinnuvernd
gert sér grein fyrir helstu hættum sem fylgja vinnu í eldhúsi.
Heimilisfræði 4, bls. 3, 4.
Umræður um hættur í umhverfi nemenda og hvað þau geta gert til að koma í veg fyrir slys og óhöpp.
Lífshættir
tjáð sig á einfaldan hátt um heilbrigða lífshætti,
Heimilisfræði 4, bls. 24-27.
Umræður um lífs- og matarvenjur og áhrif þeirra á líkama og líðan.
Næring
valið hollan mat og útskýrt áhrif hans á líkama og líðan,
Heimilisfræði 4, bls. 30
Rýnt í eigið mataræði.
Hreinlæti
farið eftir einföldum leiðbeiningum um hreinlæti og þrif,
Heimilisfræði 4, bls. 3-4.
Rætt um handþvott og nauðsyn hans, (nemendur venjast á að þvo sér um hendur áður en matartilbúningur hefst).
Þjálfast í að vaska upp og þurrka.
Læri hvers vegna það sé nauðsynlegt að viðhafa hreinlæti og snyrtimennsku við heimilisstörfin.
Læri að eldhúsið er sérstæður vinnustaður.
Kostnaður
tjáð sig á einfaldan hátt um kostnað við máltíð eða nesti.
3. bekk.
Umhverfi
sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við sjálfbærni,
Heimilisfræði 4, bls,31, 32.
Æfa sig í flokkun matarúrgangs og allt sem til fellur við heimilishald.
Myndbönd og aðrir miðlar um sjálfbærni og endurnýtingu matvæla.
Einnig umræður um úrgang sem þarf að urða eða endurvinna.
Geri sér grein fyrir því að við berum öll sameiginlega ábyrgð á umhverfi okkar
Neytendur
skilið einfaldar umbúðamerkingar,
Heimilisfræði 4, bls, 31.
Menning
tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald og þekki þjóðlegan mat,
Heimilisfræði 4,
Umræður og fræðsla um ýmsar hátíðar og siði og þjóðlegan mat.
Verklegar æfingar tengdar borðhaldi.
Umræður um mismunandi matarmenningu.
Matreiðslubækur.
Kolefnisspor
gert sér grein fyrir mismunandi kolefnisspori matvæla.
Umræða um mismunandi kolefnisspori matvæla.