Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Matreiðsla:
útbúið einfaldar og hollar máltíðir með aðstoð,
Heimilisfræði 2, (námsefni í heimilisfræði fyrir 2. bekk), bls. 6, 7, 8, 10,11, 13,14, 16,17, 18, 19, 20, 21, 22.
Verklegar æfingar í matargerð og bakstri,
Vinnubrögð:
farið eftir einföldum uppskriftum og notað til þess einföld mæli- og eldhúsáhöld og sinnt viðeigandi frágangi,
Heimilisfræði 2, bls. 2, 6-22, 31.
Nemendur æfa notkun ýmissa mæliáhalda og æfa sig að lesa uppskriftir.
Læri um nauðsyn þess að viðhafa hreinlæti við heimilisstörfin
Vinnuvernd
gert sér grein fyrir helstu hættum sem fylgja vinnu í eldhúsi.
Heimilisfræði 2, bls. 3, 4.
Umræður um hættur í umhverfi nemenda og hvað þau geta gert til að koma í veg fyrir slys og óhöpp.
Skyndihjálp, bruni.
Lífshættir
tjáð sig á einfaldan hátt um heilbrigða lífshætti,
Heimilisfræði 2, bls. 24-25.
Næring
valið hollan mat og útskýrt áhrif hans á líkama og líðan,
Heimilisfræði 2, bls. 24-25, 27-28.
Umræður um lífs- og matarvenjur og áhrif þeirra á líkama og líðan.
Læri um góðar matarvenjur.
Hreinlæti
farið eftir einföldum leiðbeiningum um hreinlæti og þrif,
Heimilisfræði 2, bls. 3-4, 32.
Læri um mikilvægi handþvottar.
Sýnikennsla og verklegar æfingar í handþvotti og notkun á tuskum og diskaþurrkum.
Geti gert greinarmun á hreinu og óhreinu eldhúsi
Kostnaður
tjáð sig á einfaldan hátt um kostnað við máltíð eða nesti.
Byrjar í 3. bekk.
Umhverfi
sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við sjálfbærni,
Heimilisfræði 2, bls. 26
Myndbönd og aðrir miðlar um sjálfbærni.
Æfa sig í flokkun matarúrgangs og allt sem til fellur við heimilishald.
Neytendur
skilið einfaldar umbúðamerkingar,
Byrjar í 3. bekk.
Menning
tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald og þekki þjóðlegan mat,
Heimilisfræði 2, bls. 5, 30.
Umræður og verkefni um mannasiði og mismunandi matarmenningu á ólíkum tímum.
Kolefnisspor
gert sér grein fyrir mismunandi kolefnisspori matvæla.
Byrjar í 4. bekk.