Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Matreiðsla
matreitt einfaldar og hollar máltíðir út frá ráðleggingum um mataræði frá embætti landlæknis,
Gott og gagnlegt 2, lesbók. Gott og gagnlegt 2 Heimilisfræði – uppskriftir https://vefir.mms.is/uppskriftavefurinn/gott_gagn2_uppskriftir_net.pdf
Uppskriftir fyrir unglingastig, https://vefir.mms.is/heimilisfraedi/unglingastig.pdf
Unnið með ólíka miðla við leit að hollum uppskriftum og næringarinnihaldi þeirra í tengslum við fæðuhringinn.
Vinnubrögð
unnið sjálfstætt eftir uppskriftum og notað til þess algengustu mæli- og eldhúsáhöld og skilið gildi viðeigandi frágangs
Verklegar æfingar í matargerð og bakstri.
Para- og hópavinna.
Vinnuvernd
greint frá helstu orsökum slysa við eldhússtörf og hvernig má koma í veg fyrir þau.
Jafningjafræðsla tengd slysum á heimilum.
Þekkja helstu orsakir slysa og vita hvernig koma má í veg fyrir þau.
Læri hvernig við tryggjum öruggt vinnusvæði .
Lífshættir
tjáð sig um heilbrigða lífshætti eins og næringu, hreyfingu og svefn,
Gott og gagnlegt 2, lesbók, bls. 3, 4, 5 og vinnuhefti.
Umræður um lífs- og matarvenjur og áhrif þeirra á líkama og líðan.
Efni af vefsíðum eins og t.d.
Næring
skilið og tjáð sig á einfaldan hátt um aðalatriði ráðlegginga um mataræði frá embætti landlæknis
Hreinlæti
öðlist færni í hreinlæti og þrifum tengdu matreiðslu
Gott og gagnlegt 2 nemandabók bls.46, 47. Vinnuhefti- uppþvottur. Uppþvottur eftir settum reglum, þrif og frágangur.
Viti um helstu smitleiðir örvera.
Haldi vinnusvæði hreinlegu.
Kostnaður
gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald
Nemendabók bls. 13,og vinnuhefti.
Nemendur útbúa samloku í tíma og reikna út mismuninn á því hvað heimagerð samloka kostar í samanburð við keypt samloku. Markmiðið hér er að koma þeirri hugsun inn hjá nemendum að heimatilbúið getur verið miklu ódýrara heldur en það sem er keypt tilbúið í búðinni.
Umhverfi
sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við jafnrétti og sjálfbærni og áttað sig á uppruna helstu matvæla,
Vettvangsferð:
Nemendur fara í vettvangsferð ásamt kennara. Nemendum er skipt í hópa og þeir fara um verslunina og taka myndir af vörum sem þeir telja umhverfisvænar sem og vörum sem þeir telja að séu það ekki. Nemendur nota síðan myndirnar til að búa til kynningarveggspjald sem síðar verður hengt upp á veggi skólans.
Æfa sig í flokkun matarúrgangs og allt sem til fellur við heimilishald,
Neytendur
skilið mismunandi umbúðamerkingar og þekki helstu geymsluaðferðir
Gott og gagnlegt 2, nemendabók , 34, 35, og vinnuheft
Myndbönd og aðrir miðlar um uppruna, framleiðsluferli og geymslu matvæla.
Vinna verkefni tengd neytendavernd.
Menning
tjáð sig um þjóðlegar íslenskar hefðir í matargerð
Umræður og fræðsla um ýmsar hátíðar og siði og þjóðlegan mat,
Verklegar æfingar tengdar borðhaldi.
Umræður um mismunandi matarmenningu.
Kolefnisspor
áttað sig á gildi þess að neyta matvæla með sem minnst kolefnisspor.
https://himinnoghaf.is/greinar/kolefnisspor-matvaelaframleidslu/